Vinnustaðurinn
Expectus er ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtæki sem aðstoðar stærstu fyrirtæki landsins við að ná varanlegum árangri með því að nýta sér rauntímaupplýsingar til ákvarðanatöku. Það er okkur kappsmál að gera viðskiptavinum kleift að nýta gögn og gervigreind með markvissum hætti.
Við vinnum náið með okkar viðskiptavinum við að hanna og viðhalda framúrskarandi stjórnendaupplýsingum og gerum þeim kleift að spyrja og svara sínum eigin spurningum á einfaldan hátt. Þessa hæfni byggjum við á bestu aðferðarfræðum og hugbúnaði hverju sinni.


Samfélagsleg ábyrgð
Við hvetjum starfsfólk til að verja allt að tveimur dögum á ári í þágu samfélagslegra verkefna, þar sem þeirra sérfræðiþekking nýtist til góðra málefna. Einnig leggjum við áherslu á verkefni innanhúss á sviði samfélagslegrar ábyrgðar sem snúa að minnkun kolefnisspors, flokkun sorps og bættri heilsu starfsfólks.
Expectus leggur mikla áherslu á jafnréttismál og vinnum við markvisst að því að jafna kynjahlutföll í störfum innan fyrirtækisins ásamt því að starfa eftir jafnlaunastefnu þess.
Fyrirmyndarfyrirtæki
Við erum auðmjúk og stolt að hafa verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki og Fyrirtæki Ársins hjá VR síðastliðin ár.
Fyrirmyndarfyrirtæki
2025
Fyrirmyndarfyrirtæki
2024
Fyrirtæki ársins
2023
Fyrirtæki ársins
2022
Fyrirmyndarfyrirtæki
2021
Fyrirmyndarfyrirtæki
2020
Fyrirmyndarfyrirtæki
2019
Fyrirtæki ársins
2018
Fyrirtæki ársins
2017
Fyrirtæki ársins
2016
Starfsumhverfi
Expectus er fjölskyldumiðaður vinnustaður og við leggjum okkur fram við að skapa einstakt vinnuumhverfi og veita tækifæri til starfsþróunar.
Hreyfing | Okkur er annt um líkamlega og andlega heildu starfsfólks og veitum árlegan líkamsræktarstyrk |
Skemmtun | Við elskum að hafa gaman og erum reglulega með skemmtilega viðburði á dagskrá |
Búnaður | Við erum með fyrsta flokks starfsbúnað fyrir okkar starfsfólk. Við aðstoðum starfsfólk við að koma sér upp aðstöðu heima |
Vinnutími | Sveigjanlegur vinnutími |
Matur | Hádegismatur á skrifstofunni alla daga. Nasl og drykkir eru einnig á boðstólnum fyrir starfsfólk, gesti og gangandi |