Expectus
Ráðgjafar okkar hafa áralanga reynslu í að vinna með stjórnendum fyrirstækja og stofnana í að móta og innleiða gagnadrifna menningu.
Gagnalausnir sem skapa raunverulegan árangur
Við hjálpum fyrirtækjum að umbreyta gögnum í skýra innsýn, örugga innviði og gagnadrifinn rekstur. Lausnir okkar ná yfir allt frá skýrslugerð og mælaborðum til rauntímagagna, gagnainnviða og þjálfunar, allt sniðið að þörfum hvers viðskiptavinar.
Við hönnum gagnvirkar skýrslur og mælaborð sem gefa starfsmönnum skýra yfirsýn yfir rauntímagögn og lykilmælikvarða. Með aðgengilegum og vel hönnuðum mælaborðum verður auðveldara að fylgja markmiðum, greina frammistöðu og taka gagnadrifnar ákvarðanir á öllum stigum fyrirtækisins. Við nýtum hugbúnað eins og Power BI og Tableau til að skapa lausnir sem styðja við stefnu, markmið og daglegan rekstur.
Rauntímagögn & sjálfvirkir ferlar
Við umbreytum gögnunum í áreiðanlegar, skýrar rauntímaupplýsingar með því að tengja saman ólík kerfi og setja upp sjálfvirk og stöðug gagnastreymi. Þannig tryggjum við að réttar upplýsingar skili sér á réttan stað og réttum tíma, til að styðja við örugga ákvörðunartöku.
Vöruhús gagna
Í samstarfi við okkar viðskiptavini byggjum við upp örugga og framtíðarhæfa gagnainnviði. Með lausnum eins og Timextender, Jet Analytics og Fabric tryggjum við stöðugt aðgengi að gögnum sem styðja rekstur, innsýn og gervigreindarvæðingu fyrirtækja.
Gagnamódel & KPI stjórnun
Við mótum gagnamódel og skilgreinum lykilmælikvarða á einum stað til að tryggja að allir noti sömu gögn, sömu mælikvarða og sömu skilgreiningar. Þannig verður auðveldara að fylgst með árangri, bera saman rekstrarupplýsingar og byggja upp traust á tölunum.
Þjálfun í BI & gagnagreiningu
Við bjóðum upp á verklega og markvissa þjálfun þar sem starfsfólk lærir að byggja eigin mælaborð og greiningar. Þannig styrkjum við gagnamenningu innan fyrirtækja og gerum teymunum kleift að nýta gögn á sjálfstæðan, öruggan og árangursríkan hátt.
Áætlanagerð
Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að endurhanna og innleiða áætlunarferla hjá viðskiptavinum. Sérfræðingar okkar eru með áralanga reynslu af því að smíða sérhæfð líkön í samstarfi við viðskiptavini okkar í lausnum eins og Kepion og Toolpack.
Gervigreind og vélnám
Við aðstoðum fyrirtæki og stofnanir við að taka fyrstu skref í gervigreindarvæðingu. Hvort sem það er með almennri vitundarvakningu hjá viðskiptavininum og sýn á hverjir möguleikarnir eru eða með smíði gervigreindar lausna sem aðstoða við sjálfvirknivæðingu.
Mælaborð
Við greinum opinberar upplýsingar og gefum þér innsýn í málefni líðandi stundar á myndrænan hátt.
Umsagnir
Svona náðu tandur og Jysk árangri með Expectus
Deploying the exMon Platform has helped expose the quality of our data fabric in multiple dimensions. Not only by efficiently identifying missing, wrong or late data entries in a smart designed feedback loop to data contributors, but more importantly … triggered a dialogue on how well our data can support automated
Arne Sólmundsson
Director, Infrastructure & Processes. Teva Pharmaceutical
Deploying the exMon Platform has helped expose the quality of our data fabric in multiple dimensions. Not only by efficiently identifying missing, wrong or late data entries in a smart designed feedback loop to data contributors, but more importantly … triggered a dialogue on how well our data can support automated
Arne Sólmundsson
Director, Infrastructure & Processes. Teva Pharmaceutical









