Einfaldaðu áætlunargerðina með Kepion
Expectus hjálpar þér að byggja upp nútímalegar og öflugar lausnir fyrir fjárhagsáætlanir, spár og áætlanagerð með Kepion. Við hönnum og innleiðum sérsniðin FP&A líkön sem samþætta Excel, Power BI og allt þitt Microsoft-umhverfi, með það að markmiði að bæta yfirsýn og hraða ákvarðanatöku.
Hvað er Kepion?
Nútímaleg fjárhagsáætlunar- og greiningarlausn (FP&A) fyrir Microsoft-vistkerfið. Styður samþætta áætlanagerð þvert á svið og félög og tengir saman gögn, teymi og ákvarðanatöku innan fjármála, aðfangakeðju og rekstrar.
Með Kepion er mótuð lausn sem endurspeglar hvernig fyrirtækið þitt starfar í raun og flýtir leiðinni frá stefnu til árangurs
Kepion, byggt á tækni Microsoft
Byggðu áætlanagerð á traustum Microsoft-grunni. Kepion er hannað fyrir fyrirtækjaumhverfi og samþættist Microsoft 365, Dynamics 365, Power BI, Azure Cloud og SQL Server. Lausnin styður miðlæga gagnastjórnun, örugga aðgangsstýringu, skalanlega uppbyggingu og fulla stjórn á gagnalíkani og arkitektúr.
Hvernig við notum Kepion
Áætlanagerð og spá
Hraðari áætlanageðr, betri spár og skýrari ákvarðanir. Sjálfvirknivæddu áætlanagerðina og veittu stjórnendum rauntímayfirsýn til að taka upplýstari ákvarðanir
Sölu- og rekstraráætlanagerð (S&OP)
Samræmdu eftirspurn, framboð og fjármál. Bættu birgðastýringu, ákvarðanir um afkastagetu og samhæfingu milli teyma með einni sameiginlegri áætlun
Mannauðsáætlanagerð
Skipuleggðu starfsmannafjölda og launakostnað af nákvæmni. Aðlagaðu mönnun og úthlutun mannauðs hratt eftir því sem þarfir rekstrarins breytast
Stefnumótandi áætlanagerð
Byggðu upp langtímaáætlanir og berðu saman mismunandi sviðsmyndir. Tengdu stefnumótun við fjárhagslegan árangur til að skapa skýra stefnu og meiri sveigjanleika í ákvarðanatöku
Viltu kanna hvað Kepion getur
gert fyrir þig?