expectus

Microsoft Fabric. Öll gögn á einum stað


Microsoft Fabric er heildstæður gagnavettvangur frá Microsoft sem sameinar allt sem nútímaleg gagnadrifin fyrirtæki þurfa, innlestur gagna, gagnageymslu, eftirlit gagna og skýrslugerð.


ms fabric
Fabric

Eitt umhverfi. Öll tólin.


Með því að sameina kunnugleg tól á borð við Data Factory, Synapse og Power BI í eitt samræmt og stýrt umhverfi einfaldar Fabric uppsetningu og rekstur gagnainnviða. Niðurstaðan er skýrari og hagkvæmari yfirsýn yfir gögn fyrirtækja og betri grunnur fyrir upplýsta ákvarðanatöku


Fabric icon 1

Samræmt umhverfi

Data Factory, Synapse og Power BI undir einu þaki – ein leyfisuppbygging, eitt notendaviðmót

Fabric Icon Eftirlit Gagna

Eftirlit gagna

Innbyggð gæðaeftirlit, línurekjanlegar gagnalínur og samræmdar öryggisstillingar

Fabric Icon Skýrslugerð

Skýrslugerð

Power BI innbyggt í Fabric – engin aðskilin leyfisuppbygging fyrir skýrslugerð

Hvernig Expectus getur hjálpað


Hjá Expectus aðstoðum við fyrirtæki á öllum stigum Fabric-vegferðarinnar. Frá grunnhönnun á umhverfinu, samþættingu gagna, þróun gagnalíkana og þjálfun notenda.


Hvort sem markmið ykkar er að byggja upp nútímalegt gagnaumhverfi frá grunni eða þróa áfram núverandi umhverfi, tryggjum við að lausnin styðji við þarfir fyrirtækisins.


Mat á núverandi gagnaumhverfi og hönnun Fabric-uppsetningar sem passar við reksturinn.

Tenging gagnalinda, hreinsun og flutningur í Fabric-umhverfið.

Uppbygging gagnalíkana og Power BI skýrslna sem styðja við ákvarðanatöku.

Þjálfun og stuðningur svo starfsfólk geti nýtt gögnin til fulls í daglegu starfi.

Viltu kanna hvað Fabric getur

gert fyrir þig?