expectus

Tableau aðstoðar við að skoða og skilja gögn


Gögn, greiningar og traust gervigreind sem hentar öllum

Tableau
Okkar lausnir

Af hverju Tableau?

Sem eitt af leiðandi tólunum í viðskiptagreind (BI) er Tableau þekkt fyrir að sækja gögn af öllum toga úr nánast öllum gerðum kerfa og breyta þeim hratt og auðveldlega í hagnýta og aðgerðarhæfa innsýn. Lausnin byggir á einföldu „drag-and-drop“ viðmóti sem gerir notendum kleift að vinna með gögn án flókins uppsetningarferlis.

Auk þess veitir Tableau framúrskarandi fræðslu, þjálfun og aðgang að öflugu alþjóðlegu gagnasamfélagi sem tryggir viðskiptavinum hámarksárangur. Þessi stuðningur er veittur í samræmi við markmið Tableau um að hjálpa fólki að skoða og skilja gögn og snýst ekki eingöngu um tækni heldur að tryggja framgang viðskiptavina með því að aðstoða þá við að stuðla að gagnamenningu.


Afar einfalt notendaviðmót

Tableau setur notandann í fyrsta sæti. Þeirra skoðun er sú að gagnagreining skuli snúast um að spyrja spurninga en ekki að læra á hugbúnað. Bestu starfsvenjur fyrir sjónræna framsetningu eru innbyggðar og því gerir Tableau notendum kleift að greina gögn á frjálsan og skapandi hátt án þess að rjúfa flæði greiningarvinnunnar.

tableu dashboard
Tableau Pulse AI

Öflugt greiningartól sem hentar öllum

Tableau setur notandann í fyrsta sæti. Þeirra skoðun er sú að gagnagreining skuli snúast um að spyrja spurninga en ekki að læra á hugbúnað. Bestu starfsvenjur fyrir sjónræna framsetningu eru innbyggðar og því gerir Tableau notendum kleift að greina gögn á frjálsan og skapandi hátt án þess að rjúfa flæði greiningarvinnunnar.

Fólk lærir hraðar

Tableau byggir á rannsóknum sem miða að því að gera greiningu hraðari og einfaldari. Með því að gera notandum kleift að greina gögn hratt með tafarlausri endurgjöf verður Tableau notendavænt, skemmtilegt og auðvelt í notkun.

Tableau Jumpstart


Með Tableau nýtir þú núverandi fjárfestingar í tækni og tryggir að þær skili auknum hagnaði eftir því sem sem gagnalandslagið þróast. Tableau býður upp á flesta valkosti við að greina og tengja öll gögn þín saman, óháð því hvar þau eru geymd.

Tableau býður upp á öryggi og öfluga gagnastjórnun í hæsta gæðaflokki sem sér til þess að gögnin séu ávallt í réttum höndum, jafnvel þegar greiningarferli eru yfirfærð þvert á fyrirtækið. Stjórnkerfið er bæði einfalt og öflugt og dregur úr tíma sem fer í aðgangsstýringar og öryggismál.

Með fjölbreyttu og áreiðanlegu úrvali eiginleika, ásamt öflugu alþjóðlegu samstarfsneti, styður Tableau fyrirtæki í gegnum vegferð sína, allt frá undirbúningi til greiningar og deilingar, með gagnastjórnun á hverju stigi.

Viltu kanna hvað Tableau getur

gert fyrir þig?