Einfaldaðu miðlun gagna með DataCentral
DataCentral gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að miðla skýrslum og gagnalíkönum án takmarkana. Lausnin er íslensk og afrakstur 7 ára þróunarvinnu í skilvirkri gagnamiðlun. DataCentral er í dag í notkun hjá tugum fyrirtækja í ýmsum atvinnugeirum. Má þar nefna fyrirtæki í atvinnugeirum á borð við orku, smásölu, flugrekstri, rekstri flugvalla og ferðaþjónustu.
Lausn sem frelsar gögnin og eflir öryggi
Einfaldleiki
Einfalt og þægilegt vef- og farsímaviðmót sem er hægt að sérhanna og aðlaga að hverjum og einum. Engin þörf á appi í farsíma til að skoða skýrslur.
Leyfismál
Lausnin nýtir sér afkastagetu í skýjaumhverfum notandans ásamt því að geta endurnýtt leyfi sem eru til staðar. Engin þörf á endanotendaleyfum fyrir þá sem lesa skýrslur.
Sjálfvirkni
Lausnin getur notast við “writeback” virkni þannig að skýrslur geti nýst í upplýsingasöfnun. Með þessari virkni geta notendur staðfest/hafnað færslum eða bætt við athugasemdum með lítilli fyrirhöfn.
Auðkenning
Einföld, sveigjanleg og örugg auðkenning sem gerir notendum kleift að notast við leiðir á borð við Microsoft-auðkenningu, rafræn skilríki eða hefðbundið notandanafn og lykilorð.


Aðgangsstýring
Einfalt að stýra aðgangi og heimildum notenda fyrir mismunandi umhverfi og skýrslur ásamt því að setja upp RLS (row-level security) stillingar. Hægt er að framlengja RLS virkni fyrir ytri notendur án þess að gera viðkomandi að gestanotanda í umhverfi eiganda gagna (external user).
Miðlun
Aðgengi að skýrslum miðlað til 10, 100 eða 1.000 notenda með einföldum hætti – án leyfistakmarkanna fyrir endanotendur.
Miðlaðu skýrslum þínum, mælaborðum eða gagnalíkönum á öruggan hátt án takmarkanna sem einskorðast við leyfismál.

Um DataCentral - íslenskt hugvit
Stefna DataCentral er að verða leiðandi lausn sem samþættist á einfaldan hátt við viðskiptagreindartól viðskiptavina og gerir þeim þannig kleift að stýra og miðla gögnum á skilvirkan hátt, bæði til innri- og ytri aðila. Þeirra sýn er að gera viðskiptavinum kleift að fullnýta gögnin sín og auka þannig gæði ákvarðanatöku og rekstrarlega skilvirkni.
Hlutverk DataCentral er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir að leysa þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir í gagnamiðlun. Þetta gera þau með því að bjóða upp á lausn sem fullnýtir og eykur möguleika leiðandi viðskiptagreindarlausna á borð við Power BI og Tableau. DataCentral brennur fyrir að einfalda notkun, sveigjanleika og skilvirkni myndrænnar framsetningar á gögnum. Þau vilja þannig tryggja að notendur fá sem mest út úr sínum gagna innviðum og styðja þannig við vöxt, nýsköpun og aukinn árangur.
Nýsköpun er kjarninn í öllu sem þau gera og hvetur þau þannig áfram til að þróa framúrskarandi lausnir sem eru sérstaklega hannaðar til að takast á við þær flóknu og margþættu gagnaáskoranir sem fyrirtæki og stofnanir glíma við í dag. Samvinna hvort sem er við viðskiptavini eða þróunaraðila á viðskiptagreindartólum leggur undirstöðurnar fyrir vistkerfi sem hjálpar öllum að ná lengra. Viðskiptavinurinn er ávallt í forgrunni þar sem áherslan er á hagnýtar, notendavænar lausnir sem leysa raunverulegar áskoranir. Með framúrskarandi gæði að leiðarljósi tryggja þau að lausnir þeirra skapi raunverulegt og varanlegt virði fyrir sína viðskiptavini.
Viltu kanna hvað DataCentral getur
gert fyrir þig?