Upplýstari áfengiskaup

Nýjasta mælaborðið frá Expectus er unnið upp úr gögnum frá Áfengis og tóbaksverslun ríkisins. Með ÁTVR mælaborðinu geta notendur borið saman verð og vínanda í þeim fjölmörgu tegundum áfengis sem fást hjá ÁTVR. Þannig er hægt að bera saman lítraverð og átta sig á lítraverði með tilliti til vínanda í drykknum. Þannig geta neytendur gert upplýstari áfengiskaup

Garðar Benediktsson, gagnasérfræðingur hjá Expectus, vann mælaborðið með því að nota gögn af vefsíðunni vinbudin.is. „Þetta mælaborð er nú meira til gamans gert en sýnir vissulega hvað er hægt að gera margt með fyrirliggjandi gögn. Mörg fyrirtæki á Íslandi liggja á griðarlegum verðmætum sem eru gögnin þeirra og þessi verðmætu gögn er hægt að nýta til að taka upplýstari ákvarðanir í fyrirtækjarekstri. Við hjá Expectus getum hjálpað til við slíkt“, segir Garðar.

 

Upplýsingar úr ÁTVR mælaborðinu geta verið áhugaverðar og jafnvel gagnlegar fyrir þá sem eru að velta fyrir sér jólabjórnum og vilja taka upplýstari ákvörðun um jólabjórsinnkaupin með hagsýni að leiðarljósi.

Hafðu samband

Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband eins fljótt og hægt er.

Contact Us

By Sigrún Anna October 21, 2025
Expectus hefur ráðið til sín þau Jón Bergmann, Sturlu Sæ Erlendsson og Sigrúnu Önnu Guðnadóttur. Jón Bergmann er ráðinn sem ráðgjafi í viðskiptagreind. Hann er með doktorspróf í kennilegri eðlisfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku og meistaragráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands. Jón hefur víðtæka reynslu sem gagnanörd, forritari og vísindamaður og hefur meðal annars starfað sem sérfræðingur hjá Controlant, Símanum og Veðurstofu Íslands. Þar leiddi hann meðal annars þróun á hugbúnaði fyrir greiningu og sjálfvirkni, auk þess að vinna með stórgagnalausnir og gervigreind. Sturla Sær Erlendsson er ráðinn sem ráðgjafi hjá Expectus. Hann er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og stundar nú meistaranám í framleiðsluverkfræði og stjórnun við KTH í Stokkhólmi. Sturla starfaði síðast hjá Icelandair sem sérfræðingur í Amadeus Queues og ferðaráðgjafi. Hann hefur einnig komið að rannsóknum á sviðsmyndagreiningu hjá Frumkvöðlasetri Íslands og á að baki frumkvöðlareynslu sem stofnandi og fatahönnuður fyrirtækisins/hönnunarfyrirtækisins Reykjavík Roses. Sigrún Anna Guðnadóttir er ráðin sem skrifstofustjóri Expectus. Hún er með meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla. Sigrún kemur til Expectus með áralanga reynslu úr bókhaldi, launavinnslu og rekstrarráðgjöf auk sérhæfingar í stafrænni markaðssetningu. Hún starfaði síðast hjá Datera sem sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu og þar áður leiddi hún launadeild hjá Fastlandi. „Það er orðin krafa í nútímafyrirtækjarekstri að stjórnendur og starfsmenn geti tekið gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á traustum rauntímaupplýsingum. Við hjá Expectus höfum síðastliðin 16 ár aðstoðað fyrirtæki og stofnanir landsins við val og innleiðingar á gagnalausnum sem styðja við þá vegferð og gerir þeim kleift að ná árangri hraðar en áður. Jón, Sturla og Sigrún eru frábær viðbót í öflugan hóp sérfræðinga hjá Expectus sem gerir okkur kleift að þjónusta okkar viðskiptavini af sama krafti og við höfum gert frá upphafi,“ segir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus.
December 12, 2024
Stefán Rafn Stefánsson, framkvæmdastjóri Cubus, Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus, Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður Expectus og Andri Páll Heiðberg, stjórnarformaður og ráðgjafi hjá Cubus.