Samstarf um öryggi og eflingu gagnamiðlunar án leyfistakmarkana

Bjarki Kristjánsson, framkvæmdastjóri DataCentral, Davíð Stefán Guðmundsson, yfir viðskiptaþróun DataCentral og Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus.
Datacentral og Expectus hafa gengið frá samstarfssamningi um ráðgjöf og endursölu á DataCentral – íslenskri skýjaþjónustu sem eflir gagnamiðlun án leyfistakmarkana.
Með Datacentral losna fyrirtæki undan leyfisfjötrum og öryggi gagnamiðlunar eykst. Lausnin gerir fyrirtækjum kleift að draga verulega úr árlegum kostnaði í leyfisgjöld, sem til fellur þegar skýrslum er deilt með starfsmönnum og samstarfsaðilum. Datacentral og Expectus sameina krafta sína í öflugri heildarþjónustu við gagnamiðlun, notendastýringu, auðkenningu og öryggi.
Helstu kostir DataCentral:
• Afnemur leyfishindranir – Unnt er að deila gögnum með ótakmörkuðum fjölda notanda.
• Styður upplýsingaskjái – Innbyggð virkni fyrir birtingu á stafrænum skjám.
• Breytir skýrslum í gagnvirk öpp – Notendur geta samþykkt, hafnað og skráð athugasemdir.
• Tryggir gagnaöryggi – Viðkvæm gögn haldast í umhverfi viðskiptavinar.
• Skalast með þörfum fyrirtækja
– Hvort sem notendur eru 10 eða 10.000.
Lausnin samþættist vinsælum skýrslugerðarverkfærum á borð við Power BI og leysir aðsteðjandi vandamál sem fyrirtæki glíma við í gagnamiðlun. Expectus og Datacentral munu vinna náið saman að kynningu, fræðslu og innleiðingu á lausninni hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum undir yfirskriftinni
„Frelsum gögnin”.
„Við sjáum gríðarlegt tækifæri í DataCentral fyrir okkar viðskiptavini. Lausnin er hönnuð af fólki sem skilur vandann og leysir hann á einfaldan og skýran hátt.”
– Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus
„Samstarfið er mikil viðurkenning fyrir DataCentral. Expectus er einn stærsti aðilinn í þjónustu á sviði viðskiptagreindar á Íslandi og er því sterkur samstarfsaðili með djúpan skilning á rekstri og virði gagna.”
– Davíð Stefán Guðmundsson, viðskiptaþróun DataCentral
Expectus veitir á þriðja hundrað fyrirtækja og stofnana þjónustu á sviði viðskiptagreindar og áætlanagerðar með dóttur- og hlutdeildarfélög í hugbúnaðargerð, fjármálaþjónustu og stjórnunarráðgjöf. Í heild starfa um 30 manns á vegum félagsins.
Hafðu samband
Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband eins fljótt og hægt er.
Contact Us



