Persónuverndaryfirlýsing

Almennt

Expectus er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari tilkynningu má sjá hvaða persónuupplýsingum fyrirtækið safnar um einstaklinga vegna starfsemi sinnar og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað við geymum þær lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli fyrirtækið safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Hvað eru persónuupplýsingar og vinnsla persónuupplýsinga?

Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til tiltekins einstaklings, svo sem upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, fjárhag, heilsufar, IP tölu og fleira.


Með viðkvæmum persónuupplýsingum er átt við persónuupplýsingar sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt persónuverndarlögum s.s. upplýsingar um þjóðernisuppruna eða kynþátt, stjórnmála- og trúarskoðanir, stéttarfélagsaðild, erfðagögn, heilsu, kynlíf eða kynhneigð.

Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við alla meðferð og notkun persónuupplýsinga svo sem söfnun, skráningu, varðveislu, breytingu eða eyðingu.

Hvernig vinnur Expectus persónuupplýsingar?

Hjá okkur fer vinnsla persónuupplýsinga fram á lögmætum grundvelli og í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Expectus gætir að því að farið sé að meginreglum persónuverndarlaga.

Sjálfvirk ákvarðanataka

Hjá okkur fer ekki fram sjálfvirk ákvarðanataka við vinnslu persónuupplýsinga

Um hverja safnar Expectus persónuupplýsingum?

Í starfsemi okkar er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið hefur undir höndum eru um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við. 

Í hvaða tilgangi safnar Expectus persónuupplýsingum um þig?

Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að:

  • geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn og viðsemjendur.
  • geta veitt viðskiptavinum umbeðna þjónustu.
  • gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins, til dæmis með eftirlitsmyndavélum í öryggis- og eignavörsluskyni.
  • uppfylla lagaskyldu.

Á hvaða lagagrundvelli vinnur Expectus persónuupplýsingar um þig?

Við söfnum og vinnum persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:

  • samþykki þínu.
  • til að uppfylla samningsskyldu.
  • til að uppfylla lagaskyldu.
  • til að gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.

Hve lengi geymir Expectus persónuupplýsingar um þig?

Við geymum persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. 

Frá hverjum safnar Expectus upplýsingum um þig?

Við söfnum persónuupplýsingum frá þér beint. Ef safnað er persónuupplýsingum frá þriðja aðila mun fyrirtækið eftir fremsta megni leitast við að upplýsa viðkomandi einstakling um það.

Hvenær miðlar Expectus þínum persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?

Við miðlum persónuupplýsingum til þriðju aðila sem ráðnir eru af fyrirtækinu til að vinna fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitenda, umboðsmanna eða verktaka. Í þeim tilfellum gerir Expectus vinnslusamning við viðkomandi aðila. Expectus miðlar einnig upplýsingum til þriðju aðila þegar skylda stendur til þess samkvæmt lögum.

Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið

Expectus er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Expectus flytur ekki persónuupplýsingar út fyrir Evrópska efnahagssvæðið nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Réttindi þín

Hafir þú veitt samþykki þitt fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga átt þú rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað.

Öryggi persónuupplýsinga

Expectus hefur gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. 

Upplýsingar um Expectus

Nafn: Expectus ehf.

Kt. 481208-0920

Heimilisfang: Vegmúla 2, 108 Reykjavík

Netfang: expectus@expectus.is

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá persónuvernd

Dragir þú í efa að Expectus meðhöndli persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is).

Síðast uppfært: febrúar 2022

Share by: