Nýtt og betra jarðskjálftamælaborð

Sérfræðingar Expectus smíðuðu mælaborð í Tableau byggt á jarðskjálftagögnum frá Veðurstofu Íslands sem eru unnin í exMon. Mikið hefur verið um skjálftavirkni á Reykjanesskaga á síðustu dögum og því áhugavert að nýta Tableau til þess að rýna í gögnin og sjá þróunina. Mælaborðið er gagnvirkt þannig að hægt er að smella á súlur og draga til dagsetningar stiku til að fá ítarlegri upplýsingar um hvern tímapunkt. Stærð og litir punktanna á kortinu eru í samræmi við stærð jarðskjálftana. Fyrir neðan sést svo hvernig við útfærðum þetta verkefni.


Undirliggjandi eru gögn eru frá Veðurstofu Íslands og á 15 mín fresti eru þau lesin yfir í gagnastýringartólið exMon DM. Þar eru skjálftarnir flokkaðir og sjálfvirkt bætt við ítarupplýsingum. Gögnum er síðan ýtt til Tableau Public og mælaborðin uppfærð.


Smiðir mælaborðsins eru þeir Emil og Jón Brynjar.
Mælaborðið er gert í viðskiptargreindartólinu Tableau sem við hjá Expectus erum umboðsaðilar fyrir á Íslandi. Í Tableau er hægt að taka inn hrá gögn og skapa myndrænar upplýsingar og greina betur gögnin sem liggja að baki. Bæði nýtist Tableau vel fyrir einkaaðila sem og fyrirtæki.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Tableau, exMon eða aðra þjónustu hjá okkur, ekki hika við að hafa samband með tölvupósti á 
expectus@expectus.is


Hafðu samband

Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband eins fljótt og hægt er.

Contact Us

23 Apr, 2024
Nýjasta mælaborð Expectus sýnir niðurstöður úr könnunum sem gerðar hafa verið vegna komandi forsetakosninga. Mælaborðið er unnið úr gögnum frá Hagstofu Íslands, Vísir.is og Mbl.is og eru gögnin sett upp í ExmonDM og unnið í mælaborðatólinu Tableau. Notendur sjá niðurstöður kannana mismunandi miðla og geta einnig skoðað söguleg gögn um forsetakosningar á Íslandi.
18 Apr, 2024
Á aðalfundi ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækisins Expectus sem haldinn var í byrjun mars voru þau Edda Valdimarsdóttir Blumenstein og Helgi Logason tekin inn í eigendahóp Expectus. Bætast þau við þann öfluga hóp eigenda sem fyrir var en nokkur kynslóðaskipti hafa orðið í hópnum á undanförnum árum. Þannig hafa eldri ráðgjafar vikið og yngra fólk er komið inn í staðinn. „Ég er virkilega stolt og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt að vera komin í eigendahóp Expectus og er full tilhlökkunar að halda áfram að vinna að vexti fyrirtækisins í nýju hlutverki,“ segir Edda. Helgi tekur í sama streng: „Ég er fullur tilhlökkunar fyrir nýju hlutverki hjá Expectus. Það eru gríðarlega spennandi tímar fram undan í hvernig fyrirtæki geta nýtt sér gögn og nýjustu tækni og Expectus er í lykilstöðu til að leiða þá þróun.“ Expectus aðstoðar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins við að nýta upplýsingatæknina til að taka gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á rauntímaupplýsingum og ná þannig mælanlegum og varanlegum árangri í rekstrinum. Reynir Ingi Árnason er framkvæmdastjóri Expectus: „Við erum gríðarlega ánægð með að fá þau tvö til liðs við eigendahópinn og hlökkum til að takast á við komandi verkefni með mjög svo öflugt teymi. Það er líka sérlega ánægjulegt að fá unga konu eins og Eddu inn í þennan hóp en kona hefur ekki verið meðal eigenda Expectus síðan 2018,“ segir Reynir. Expectus var stofnað árið 2009 og hjá fyrirtækinu starfa nú yfir 30 sérfræðingar á sviði stjórnunar, reksturs, tækni og hugbúnaðargerðar .
Share by: