Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir nýr stjórnandi rekstrarráðgjafar Expectus

  • Expectus ráðgjöf, nýtt félag á traustum grunni 
  • Fjölþætt rekstrar- og stjórnendaráðgjöf með rætur í gagnadrifinni ákvarðanatöku
  • Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir er framkvæmdastjóri í nýju félagi


Expectus ráðgjöf er nýtt félag í rekstrar- og stjórnunarráðgjöf í eigu Expectus og Ingibjargar Aspar Stefánsdóttur sem hefur jafnframt verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins. Undanfarin ár hefur starfsemi Expectus verið að þróast í auknum mæli yfir í ráðgjöf á sviði viðskiptagreindar og upplýsingatækni. Til að skerpa á áherslum í starfsemi félagsins og þróa enn frekar aðra ráðgjöf, færist nú rekstrar- og stjórnunarráðgjöf yfir í nýtt félag. 


Áherslur í nýju félagi munu felast í fjölbreyttum verkefnum m.a. á sviði stefnumótunar, breytingastjórnunar, stefnuinnleiðingar, skipulagsmála og ýmiskonar þróunarverkefna. Þetta nýja skipulag tekur gildi 1. ágúst nk. og mun starfsemi nýja félagsins fléttast þétt saman við þjónustu móðurfélagsins, Expectus, þegar kemur að viðskiptagreiningu, gagnavinnslu og upplýsingamiðlun. Í stjórn félagsins sitja, auk Ingibjargar, þeir

Ragnar Þórir Guðgeirsson stjórnarformaður og Reynir Ingi Árnason framkvæmdastjóri Expectus. 


Expectus hefur undanfarin ár vaxið hratt á sviði gagnavinnslu, áætlanagerðar viðskiptagreindar og tæknilausna. Sterk rekstrarleg þekking ásamt tækniþekkingu hefur einkennt fyrirtækið og með þessari breytingu er verið að gefa rekstrar- og stjórnunarráðgjöfinni nýjan grunn til vaxtar, byggt á fjölda árangursríkra verkefna sem Expectus hefur komið að með fyrirtækjum og stofnunum í íslensku atvinnulífi á síðastliðnum 15 árum. 


Ragnar Guðgeirsson, stofnandi Expectus og stjórnarformaður í Expectus ráðgjöf, segir stofnun nýs félags vera lið í að þróa þjónustuframboð og styrkja fókus í ólíkum verkefnum en að félögin verði í nánu samstarfi í mörgum verkefnum. „Áskoranir fyrirtækja í íslensku atvinnulífi taka stöðugum breytingum og því er það mikil áskorun stjórnenda og skipulagsheilda að bregðast við og aðlagast. Ein stærsta seinni tíma áskorun fyrirtækja er að ná tökum á gögnunum sínum og þeirri verðmætasköpun sem fæst með skilvirkri vinnslu, notkun og miðlun þeirra. En við sjáum líka ríka þörf fyrirtækja fyrir ráðgjöf á sviði stefnuinnleiðingar og breytingastjórnunar sem m.a. byggir á þeim lærdómi sem gögn og upplýsingavinnsla færa okkur. Stefnumótunin sjálf er eitt en svo er það innleiðing stefnu með mælanlegum árangri sem er annað, þar geta margir gert svo miklu betur,“ segir Ragnar. 


„Það er áhugaverð og spennandi áskorun að leiða nýtt félag sem byggir á þeim trausta grunni sem felst í farsælli sögu Expectus, reynslu og þekkingu sem þar er til staðar. Við munum áfram leggja mikla áherslu á gagnadrifna ákvarðanatöku, markmið, mælikvarða og mælaborð sem er og verður leiðarstef í öllum okkar verkefnum á sviði breytingastjórnunar og stefnuinnleiðingar,“ segir Ingibjörg Ösp og bætir við: „Á næstu misserum munum við byggja upp öflugt teymi og þróa þjónustu okkar og afurðir svo við getum orðið enn öflugri í þjónustu við íslenskt atvinnulíf, stofnanir og stjórnvöld á tímum umbreytinga og nýrra áskorana.“


Ingibjörg hefur starfað sem ráðgjafi síðustu tvö ár, bæði sjálfstætt og fyrir Expectus auk þess sem hún er stjórnarformaður Hörpu. Áður hefur hún m.a. starfað sem sviðsstjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, hjá Samtökum iðnaðarins, verið framkvæmdastjóri Menningarhússins Hofs auk þess að hafa setið í stjórnum og komið að fjölda annarra verkefna. Ingibjörg er viðskiptafræðingur að mennt með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun. 


*Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri í síma 896-8486 eða Ragnar Guðgeirsson, stjórnarformaður, í síma 899-4210. 

Hafðu samband

Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband eins fljótt og hægt er.

Contact Us

By Sigrún Anna February 3, 2026
Bjarki Kristjánsson, framkvæmdastjóri DataCentral, Davíð Stefán Guðmundsson, yfir viðskiptaþróun DataCentral og Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus.
By Sigrún Anna January 21, 2026
Expectus Finance hefur ráðið til sín tvo nýja ráðgjafa, Guðrúnu Valgerði Bjarnadóttur og Sigríði Dögg Sigmarsdóttir, sem ganga til liðs við vaxandi teymi fyrirtækisins. Með ráðningunum styrkir Expectus Finance enn frekar þjónustu sína við fyrirtæki sem leita að sveigjanlegum og faglegum lausnum á sviði fjármálaferla, bókhalds- og launaþjónustu og ráðgjafar á fjármálasviði. Guðrún Valgerður er ráðin sem ráðgjafi og verkefnastjóri í ráðgjafaþjónustu Expectus Finance. Hún býr yfir víðtækri reynslu af reikningshaldi, uppgjörum og innleiðingu fjárhagskerfa. Hún hefur starfað náið með stjórnendum að því að bæta fjármálaferla, auka yfirsýn og styðja við breytingar í rekstri. Guðrún starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Deloitte og er með BSc í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess sem hún er að ljúka meistaranámi í verkefnastjórnun við Háskóla Íslands. Sigríður Dögg er ráðin sem verkefnastjóri í bókhalds- og launaþjónustu og hefur starfað við bókhald, greiningar, mánaðaruppgjör og daglegan rekstur fyrirtækja. Hún er viðurkenndur bókari og hefur komið að flestum þáttum bókhalds fyrir fyrirtæki af ólíkum stærðum og í fjölbreyttum atvinnugreinum. Sigríður starfaði áður hjá Deloitte og Eignaumsjón og býr einnig yfir mikilli reynslu af hótelrekstri frá störfum sínum sem aðalbókari hjá Hótel Sögu. „Við sjáum sífellt fleiri fyrirtæki leita eftir samstarfsaðila sem getur tekið ábyrgð á fjármálum í breiðari skilningi – ekki eingöngu sinnt bókhaldi, heldur einnig stutt stjórnendur með skýrri yfirsýn og betri ákvörðunum. Með Guðrúnu og Sirrý eflum við þessa getu enn frekar,“ segir Heiðdís Rún Guðmundsdóttir, ein stofnenda og eigenda Expectus Finance. Expectus Finance var stofnað á síðasta ári og er að vaxa hratt. Fyrirtækið leggur áherslu á skilvirka og klæðskerasniðna fjármálaþjónustu og ráðgjöf fyrir fyrirtæki þar sem regluleg uppgjör, yfirsýn og fagleg fjármálastjórn skipta sköpum. Ráðningarnar endurspegla aukna eftirspurn eftir fjármálaþjónustu sem fer lengra en hefðbundið bókhald og styður fyrirtæki sem standa frammi fyrir vexti, breytingum og auknum kröfum til fjármálastjórnunar. Markmið Expectus Finance er að gera fjármálagögn gagnleg í daglegum rekstri; ekki bara rétt bókuð. Með skilvirkum verkferlum tryggir Expectus Finance að fjármálagögn séu rétt og uppfærð, en í samstarfi við Expectus ehf. er hægt að nýta og tengja þessi gögn síðan í vöruhús gagna, áætlanakerfi og mælaborð. Þetta veitir stjórnendum skýrari yfirsýn og traustan grunn fyrir upplýsta ákvarðanatöku.  Í dag starfa í kringum 25 sérfræðingar hjá Expectus og fyrirtækið hefur verið valið bæði Fyrirtæki ársins og Fyrirmyndarfyrirtæki VR síðustu ár.