TimeXtender Data Integration
Byggðu nútíma gagnaumhverfi á styttri tíma
Hættu að eyða tíma í handvirka kóðun. Við nýtum TimeXtender til að gera gagnavinnsluna þína sjálfvirka, sveiganlega og tilbúna fyrir framtíðina
TimeXtender Data Integration eyðir flækjustiginu við smíði og viðhald á vöruhúsum gagna, - svo að teymið þitt geti einbeytt sér að upplýsingunum, en ekki innviðunum.
Er gagnaumhverfið þitt að hamla vexti?
Hár kostnaður
Sérfræðingar eyða of miklum tíma í handvirka SQL kóðun og viðhald í stað þess að greina gögn.
Hægar upplýsingar
Það tekur of langan tíma að fá ný gögn inn í kerfin, sem tefur mikilvæga ákvarðanatöku.
Skortur á trausti
Án sjálfvirkrar skjölunar er erfitt að vita hvaðan gögnin koma og hvort þau séu rétt.
Lausnin: TimeXtender TDI
Ein heildstæð lausn sem leysir bútasaum margra kerfa af hólmi.

Tengdu yfir 250 gagnagjafa (SaaS, API, SQL) áreynslulaust inn í miðlægt gagnalón.
Hreinsaðu og mótaðu gögn með "drag-and-drop" viðmóti. Engin þörf á flókinni kóðun.
Skilaðu gæðagögnum beint í Power BI, Tableau eða Qlik á örskotsstundu.
Sérþekking mætir öflugri tækni
Við hjá Expectus setjum ekki bara upp hugbúnað. Við hönnum stefnu sem tryggir að gögnin þín vinni fyrir þig. Með TimeXtender lækkum við þróunarkostnað, tryggjum fullan rekjanleika og sjáum til þess að gagnaumhverfið þitt er tilbúið fyrir breytingar framatíðarinnar.
Af hverju TimeXtender?
TDI brúar bilið á milli sveiganleika viðskiptasnjallleika og tæknilegrar nákvæmni — og skilar verðmætum á öllum stigum fyrirtækisins.
Dragðu úr kostnaði og áhættu við úrvinnslu gagna, styttu afhendingarferla og fáðu fullt traust á gögnunum sem knýja skýrslurnar þínar og stefnumótandi ákvarðanir
Hættu að skrifa endurtekna ETL kóða. Notaðu heildstætt umhverf sem býr sjálfkrafa til skjölun, framfylgir rekjanleika og gerir þér kleift að vinna hraðar með færri villum
Tilbúin að ná tökum á gögnunum?
Leyfðu okkur að sýna þér hvernig TimeXtender umbreytt þinni gagnavinnslu
Viltu kanna hvað TimeXtender DI
getur gert fyrir þig?