expectus

Þrír nýir ráðgjafar til Expectus

Ingi Ásmundsson, Kristín Ásta Sigurðardóttir og Eva Linda Gunnarsdóttir

Expectus hefur ráðið til sín þau Evu Lindu Gunnarsdóttur, Inga Ásmundsson og Kristínu Ástu Sigurðardóttur. Expectus sérhæfir sig í upplýsingatækni, rekstrarráðgjöf, stefnumótun og viðskiptagreind.

Eva Linda Gunnarsdóttir er með M.Sc. gráðu í Rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Eva kemur frá ST2 þar sem hún starfaði sem Business Intelligence og Power Platform sérfræðingur og sérhæfði sig í Power Apps, Power Automate, Power BI og innleiðingu sjálfvirkni- og gervigreindarlausna.

Ingi Ásmundsson útskrifaðist nýverið með M.Sc. gráðu í Data Analytics og Business Economics frá Lund University í Svíþjóð. Fyrir það lauk hann B.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og var í skiptinámi í sömu grein við The Cooper Union University í New York. Samhliða námi starfaði Ingi sem fjármálaráðgjafi í Landsbankanum og hefur einnig lokið prófi í verðbréfaréttindum.

Kristín Ásta Sigurðardóttir er með B.Sc. gráðu í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Kristín Ásta kemur frá Arion banka, þar sem hún starfaði sem þjónusturáðgjafi, gjaldkeri, og nú síðast sem starfsmaður í inn- og útlánadeild bankans. Kristín Ásta tók einnig starfsnám hjá PLAIO þar sem hún vann að skjölun og leiðbeiningum fyrir hugbúnaðarlausnir fyrirtæksins.

„Það er frábært að fá þau Evu, Inga og Kristínu Ástu til liðs við þann frábæra hóp af fólki sem er fyrir hjá Expectus,“ segir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus. „Expectus hefur allt frá stofnun þess árið 2009 aðstoðað fyrirtæki og stofnanir við val á gagnalausnum sem gera stjórnendum og starfsfólki kleift að taka gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á traustum rauntímaupplýsingum. Með því að fá Evu, Inga og Kristínu Ástu í hópinn erum við að styrkja teymið enn frekar sem gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini okkar af sama krafti og við höfum gert frá upphafi.“

Nánari upplýsingar veitir Reynir Ingi Árnason framkvæmdastjóri Expectus, s. 867-4999, netfang: reynir@expectus.is.