Samstarf um öryggi og eflingu gagnamiðlunar án leyfistakmarkana

Datacentral og Expectus hafa gengið frá samstarfssamningi um ráðgjöf og endursölu á DataCentral – íslenskri skýjaþjónustu sem eflir gagnamiðlun án leyfistakmarkana.
Með Datacentral losna fyrirtæki undan leyfisfjötrum og öryggi gagnamiðlunar eykst. Lausnin gerir fyrirtækjum kleift að draga verulega úr árlegum kostnaði í leyfisgjöld, sem til fellur þegar skýrslum er deilt með starfsmönnum og samstarfsaðilum. Datacentral og Expectus sameina krafta sína í öflugri heildarþjónustu við gagnamiðlun, notendastýringu, auðkenningu og öryggi.
Helstu kostir DataCentral:
• Afnemur leyfishindranir – Unnt er að deila gögnum með ótakmörkuðum fjölda notanda.
• Styður upplýsingaskjái – Innbyggð virkni fyrir birtingu á stafrænum skjám.
• Breytir skýrslum í gagnvirk öpp – Notendur geta samþykkt, hafnað og skráð athugasemdir.
• Tryggir gagnaöryggi – Viðkvæm gögn haldast í umhverfi viðskiptavinar.
• Skalast með þörfum fyrirtækja – Hvort sem notendur eru 10 eða 10.000.
Lausnin samþættist vinsælum skýrslugerðarverkfærum á borð við Power BI og leysir aðsteðjandi vandamál sem fyrirtæki glíma við í gagnamiðlun. Expectus og Datacentral munu vinna náið saman að kynningu, fræðslu og innleiðingu á lausninni hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum undir yfirskriftinni „Frelsum gögnin”.
„Við sjáum gríðarlegt tækifæri í DataCentral fyrir okkar viðskiptavini. Lausnin er hönnuð af fólki sem skilur vandann og leysir hann á einfaldan og skýran hátt.”
– Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus
„Samstarfið er mikil viðurkenning fyrir DataCentral. Expectus er einn stærsti aðilinn í þjónustu á sviði viðskiptagreindar á Íslandi og er því sterkur samstarfsaðili með djúpan skilning á rekstri og virði gagna.”
– Davíð Stefán Guðmundsson, viðskiptaþróun DataCentral
Expectus veitir á þriðja hundrað fyrirtækja og stofnana þjónustu á sviði viðskiptagreindar og áætlanagerðar með dóttur- og hlutdeildarfélög í hugbúnaðargerð, fjármálaþjónustu og stjórnunarráðgjöf. Í heild starfa um 30 manns á vegum félagsins.