expectus

Expectus kaupir 40% hlut í Norda

Orri og Reynir

Expectus hefur gengið frá kaupum á 40% hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Norda. Saman verða félögin leiðandi á sviði viðskiptaþróunar og upplýsingatækni á Íslandi.

Viðskiptavinir geta nú fengið þjónustu beggja fyrirtækja undir einu þaki sem felur í sér breitt svið tæknilausna frá gagnagreiningu, mælaborðum og árangursmælingum yfir í sérsniðinn hugbúnað og vefverslanir. Saman geta þau boðið viðskiptavinum upp á þjónustu á sviði rekstrarráðgjafar, gagnavinnslu, hugbúnaðarsmíðar og gervigreindarlausna.

Expectus er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki stofnað 2009. Hjá félaginu starfa 30 sérfræðingar sem sérhæfa sig í árangursstjórnun, gagnagreiningu, mælaborðum, vinnslu rauntímagagna og vöruhúsum gagna, meðal annars með notkun gervigreindar.

Norda er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í stafrænni vöruþróun, sérsmíðuðum hugbúnaði, þjónustuvefjum, vefverslunum og gervigreindarlausnum. Norda hefur þróað hugbúnaðinn Grunn–lausn, sem gerir fyrirtækjum kleift að vinna úr og birta gögn á einfaldan og öruggan hátt til að knýja notendavænar stafrænar lausnir og styðja við virðisaukandi stafræna ferla.

„Kröfur markaðarins hafa breyst og stjórnendur kalla í auknum mæli eftir tæknilausnum sem bæta upplifun viðskiptavina, auka sjálfvirkni í rekstri og skila mælanlegum árangri. Með því að leggja krafta okkar saman bjóðum við viðskiptavinum okkar heildstæðari þjónustu á stafræn vegferð, allt frá stefnumótun og hagnýtingu gagna yfir í hönnun og þróun öflugra hugbúnaðarlausna og hagnýtingu gervigreindar,“ segir Reynir Ingi Árnason framkvæmdatjóri Expectus.

„Við höfum deilt húsnæði með Expectus frá 2023 og teljum það frábært næsta skref að efla samstarfið enn frekar og takast á við nýjar áskoranir með stafrænum lausnum og gervigreind. Expectus og Norda vinna nú þegar fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana sem við hlökkum til að þjónusta enn betur,“ segir Orri Svavar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Norda.