Anna Björk ráðin framkvæmdastjóri Expectus Ráðgjafar
Anna Björk Bjarnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Expectus ráðgjafar og er hún jafnframt meðeigandi í félaginu. Expectus ráðgjöf heldur utan um ráðgjöf í stefnumótun, stjórnun og almennri rekstrarráðgjöf.
Hún starfaði hjá Expectus á árunum 2013 til 2018, fyrst sem stjórnunarráðgjafi og síðar sem meðeigandi og framkvæmdastjóri.
Anna Björk hefur að auki víðtæka reynslu af framkvæmdastjórn í fjölbreyttum rekstri. Hún var framkvæmdastjóri einstaklingssviðs og síðar tæknisviðs Símans á árunum 2008 til 2013, framkvæmdastjóri sérlausna og ráðgjafar hjá Advania 2018 til 2020 og framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar hjá Isavia síðastliðin sex ár.
„Ég hlakka til að vinna aftur með öflugum ráðgjöfum Expectus við að þróa enn frekar og bæta við það sem félagið hefur upp á að bjóða í að ráða stjórnendur heilt,“ segir Anna Björk.
Expectus starfar á sviði áætlanagerðar, árangursmælinga, gagnavinnslu og stuðnings við stafræna þróun og notkun gervigreindar. Auk ráðgjafararmsins rekur félagið Expectus Finance, sem sérhæfir sig í fjármálastjórnun, umbótum á fjármálaferlum, bókhaldi, launavinnslu og fjármálastjóraþjónustu.
„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Önnu Björk aftur til starfa hjá Expectus Ráðgjöf og blása auknu lífi í þá starfsemi sem hún átti virkan þátt í að byggja upp á sínum tíma,“ segir Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður.