Sækja um

Almenn umsókn

Vilt þú hafa raunveruleg áhrif og vera hluti af teymi leiðandi sérfræðinga? Hjá Expectus starfa yfir 30 sérfræðingar með ólíkan bakgrunn í ýmist ráðgjöf eða hugbúnaðargerð. Við vinnum náið með stærstu fyrirtækjum landsins í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum sem gerir þeim kleift að ná varanlegum árangri í rekstri með því að móta og innleiða gagnadrifna menningu og nýta sér rauntímaupplýsingar til ákvarðanatöku.


Expectus er fjölskyldumiðaður vinnustaður og við leggjum okkur fram við að skapa einstakt vinnuumhverfi og veita tækifæri til starfsþróunar. Við erum auðmjúk og stolt að hafa verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki og Fyrirtæki Ársins hjá VR síðastliðin ár.

Share by: