Okkar markmið er að umbylta ákvarðanatöku íslenskra fyrirtækja með því að hjálpa þeim að móta og innleiða gagnadrifna menningu með bestu lausnum sem völ er á og hámarka þannig mælanlegan árangur.
Í samvinnu við stjórnendur fyrirtækja greinum við núverandi rekstrarumhverfi, mörkum stefnu fyrirtækisins og skilgreinum mælanleg markmið. Við aðstoðum við að koma stefnunni í framkvæmd með viðurkenndri aðferðarfræði og bestu hugbúnaðarlausnum sem völ er á.
4 lykilhlutverk leiðtoga (4ER) er aðferðarfræði frá FranklinCovey sem hjálpar stjórnendum að móta sýn fyrir sín teymi, framkvæma stefnu á skilvirkan hátt og efla sitt fólk.
4 grunnstoðir við framkvæmd stefnu® (4DX) er aðferðafræði frá FranklinCovey sem veitir vinnustöðum, sem leitast eftir því að efla framkvæmd stefnu, viðeigandi tól til þess að ná markmiðum með því að skapa menningu framúrskarandi frammistöðu.
Stjórnun lykilverkefna og markmiðasetning með OKR (Objectives & Key Results). Stefna viðskiptavina er framkvæmd með skýrum, sýnilegum og mælanlegum hætti.
BizView er áætlunarkerfi í skýinu sem hjálpar fyrirtækjum að straumlínulaga áætlunarferlið.
Workday Adaptive Planning áætlunar- og samstæðuuppgjörskerfi sem er talið eitt það fremsta á markaðnum samkvæmt greiningaraðilum eins og Gartner.
Kepion er áætlunakerfi sem heldur utan um allan áætlanaferilinn og auðveldar áætlanagerð þvert á allar deildir. Kepion er notað hjá tugum íslenskra fyrirtækja til þess að einfalda áætlunarferlið.
Við hönnum skýrslur og mælaborð sem byggja á skýrum rauntímaupplýsingum. Við gerum starfsfólki fyrirtækja fært að sjá
og skilja gögnin og öðlast innsýn sem bætir ákvarðanatöku.
Tableau hjálpar öllum að sjá og skilja gögn í gegnum gagnvirk myndræn mælaborð.
Microsoft PowerBI gerir þér mögulegt að tengjast gögnum og setja þau fram myndrænt.
Advise er íslensk hugbúnaðarlausn sem er einföld í notkun og innifelur sjálfvirkar rekstrargreiningar, sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
TimeXtender er lausn sem hentar meðalstórum og stærri fyrirtækjum að búa til nútímagagnavöruhús með nýjustu
tækni á hagkvæman hátt í skýinu (cloud), á staðarneti (on-prem) eða með blandaðri lausn (hybrid).
exMon Data governance (DG) er keyrslustýring og gagnaeftirlit tryggir trausta og áreiðanlega gagnaferla með gæði gagna að leiðarljósi.
Jet Analytics er lausn sem hentar minni og meðalstórum fyrirtækjum við að búa til vöruhús gagna með nýjustu tækni á hagkvæman hátt.
exMon Data management (DM) er kerfi sem hjálpar fyrirtækjum að safna saman gögnum, flokkunum og tölum úr ýmsum skjölum fyrirtækja inn í eitt kerfi til þess að hægt sé að vinna með þau áfram. (Master Data Management kerfi)
Denodo er leiðandi í Data Virtualization.
Deploying the exMon Platform has helped expose the quality of our data fabric in multiple dimensions. Not only by efficiently identifying missing, wrong or late data entries in a smart designed feedback loop to data contributors, but more importantly … triggered a dialogue on how well our data can support automated workflows and tell the stories that need to be told for better decision making.
exMon
enhances the trust in our data, fuels the cycle of organizational learning and
forces the digital transformation to live up to its promise
… gain competitive advantage!
Director, Infrastructure & Processes. Teva Pharmaceutical
Öll réttindi áskilin | Expectus