
Stefnumótun
Grunnforsenda í öllum rekstri er að fyrirtæki hafi skýru hlutverki að gegna og skarpa sýn á þær leikreglur sem það vill að gildi innan fyrirtækisins. Þetta köllum við „hugmyndafræði” fyrirtækisins og hún er forsenda þess að inn í reksturinn veljist fólk sem getur unnið að sameiginlegum markmiðum. Með stjórnendum skilgreinum við skýra framtíðarsýn sem fyrirtækið stefnir á að ná og þarf hún að byggja á einföldum og mælanlegum markmiðum. Með starfsfólki greinum við í hvernig ástandi fyrirtækið er til að ná markmiðum sínum og hvað þarf að gera til auka líkur á að markmiðin náist. Mismunandi leiðir eru skoðaðar og metið hvaða aðferðir skila mestum árangri.
Við þessa vinnu beitum við viðurkenndum aðferðum út ólíkum áttum sem byggja á alþjóðlegum rannsóknum, fræðilegum líkönum og reynslu ráðgjafa.
Kjarnaþættir í góðum rekstri
Til að ná góðum árangri hafa rannsóknir sýnt að skýrri stefnu þarf að fylgja eftir með nokkrum grunnþáttum. Okkar þjónustuframboð tekur mið af því enda er okkur umhugað að árangur náist í þeim breytingum sem okkur er falið að aðstoða við. Þessum lykilþáttum skiptum við í eftirtalin fjögur svið:



