Starfsmenn

preview3

Ragnar Þórir Guðgeirsson Ráðgjafi
GSM     +354 8994210
E-mail  ragnar@expectus.is

Menntun:
Löggilding í endurskoðun 1992
Cand Oecon í viðskiptafræði 1989

Starfsreynsla:
1989-1997
Starfaði við endurskoðun og reikningsskil hjá KPMG, mest við fyrirtæki í blandaðri starfsemi; verslun, framleiðslu og þjónustu en síðari árin einnig fyrirtæki í fjármálaþjónustu. Vann að rafrænu skattframtali með embætti ríkisskattstjóra og átti þátt í stofnun skattanefndar, sem síðar varð skattasvið KPMG. Stofnaði hóp um tölvuendurskoðun innan KPMG og stýrði þeirri þjónustu. Meðeigandi í KPMG á Íslandi frá árinu 1997.

1998-2004
Veitti ráðgjafarsviði KPMG forstöðu frá upphafi og stýrði innri tölvudeild samhliða. Varð framkvæmdastjóri KPMG Ráðgjafar við stofnun þess árið 2000. Sinnti ráðgjafarstörfum samhliða stjórnun m.a. verkefnum sem snéru að stefnumótun og innleiðingu á upplýsingatækni, ferlagreiningum, fjármálum og skipulagsmálum.

2004-2007
Leiddi hóp stjórnenda KPMG Ráðgjafar við kaup á starfseminni út úr KPMG og sameiningu við IMG sem síðar fékk nafnið Capacent. Stýrði fjárhagslegri endurskipulagningu sameinaðs félags og tók síðan við ráðgjafarstarfseminni á Íslandi. Sinnti samhliða ráðgjöf í stefnumótun og skipulagsmálum. Annaðist á síðasta árinu hjá Capacent forstjórastarf i á Íslandi og stjórnarformennsku dótturfélags Capacent í Danmörku.

2007-2009
Sjálfstætt starfandi ráðgjafi í stefnumótun, viðskiptaþróun og rekstrarlegri endurskipulagningu. Einkum í heilbrigðismálum og fyrir fyrirtæki í orku- og fjármálageiranum. Átti á tímabilinu stutta dvöl í SPRON en hætti í tengslum við samþykkt samruna SPRON við Kaupþing.

Annað:
Kennari í reikningshaldi og rekstrarbókhaldi við meistaranám Háskólans í Reykjavík 2001-2003

Formaður Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga 2003-2005.

Formaður Ungmennafélagsins Fjölnis 2007-2009

Kristinn Tryggvi Gunnarsson

Kristinn Tryggvi Gunnarsson Ráðgjafi
GSM +354 8983140
E-mail kristinntg@expectus.is

Menntun:
MBA frá University of Georgia 1991
BS í viðskiptafræði frá University of North Carolina 1989
Fyrri hluti viðskiptafræði við HÍ 1988
Með réttindi sem leiðbeinandi í fræðum Franlin Covey, Project Adventure, Corporate Lifecycles, Lego Serious Play, Blue Ocean Strategy, Corporate Coach University og SHL.

Starfsreynsla:
1991-1998
Starfaði hjá Íslandsbanka, fyrst í alþjóðadeild en síðan á útibúasviði og síðustu þrjú árin sem útibússtjóri, fyrst í Garðabæ en síðan í Kópavogi. Kom á þessum tíma að mjög mörgum þáttum í rekstri bankans s.s. samskipti við erlenda banka, almenn útlánastarfsemi, sölu- og markaðsstarf, auk þess að stýra vexti bankans í Garðabæ og umbreytingum í útibúum í Kópavogi.

1999-2002
Framkvæmdastjóri hjá SPRON, fyrst yfir fyrirtækjasviði og síðan markaðssviði. Annaðist samskipti við marga að stærri viðskiptavinum bankans, vann að undirbúningi Netbankans-nb.is og skipulagði kortastarfsemi bankans. Átti sæti í lánanefnd bankans og vann að gerð útlánsreglna.

2003-2008
Stjórnandi hjá Capacent á Íslandi. Byrjaði sem ráðgjafi á sviði markaðs-, sölu- og þjónustumála auk stefnumótunar. Framkvæmdarstjóri ráðgjafasviðs 2006 og tók við sem forstjóri íslenska félagsins í ársbyrjun 2007. Átti stóran þátt í samþættingu ráðninga, rannsókna og ráðgjafar sem ráðgjafi og sem stjórnandi.

Annað:
Hefur hlotið viðurkenningar frá Bryan School of Business, Beta Gamma Sigma og er heiðursfélagi í ÍMARK fyrir brauðryðjendastarfs.

Hefur átt sæti í stjórnum fjölmargra félaga og fyrirtækja á Íslandi.

preview3

Hörður Már Jónsson Ráðgjafi
GSM    +354 8244787
E-mail hordur@expectus.is

Menntun:
Tölvunarfræði HÍ 2006

Starfsreynsla:
1998-2005
Sjálfsætt starfandi forritari. Smíðaði og hannaði vefkerfi sem voru seld mörgum fyrirtækjum. Rekstur á vefþjónum og gagnagrunnum. Tók einnig að mér sérforritun fyrir flóknari vefkerfi og hönnum og forritun margmiðlunardiska.

2001-2004
Forritari hjá Árvakri hf. Starfaði sem vefforritari á vefdeild mbl.is. Smíðaði helstu kerfi sem koma að daglegum rekstri mbl.is ss. fréttakerfi og auglýsingarkerfi. Sinnti ýmsum sérverkefnum eins og gagnasafni Morgunblaðsins og yfirlestri blaðsins yfir á netið.

2005-2009
Vann við ráðgjöf hjá Capacent á sviði stjórnendaupplýsinga, hönnum og smíði gagnavöruhúsa , áætlanagerð, skýrslugerð, samþættingu tölvukerfa og ýmiss sérverkefni. Smíðaði og hannaði ýmiss kerfi sem auðvelda innleiðingu og rekstur stjórnendaupplýsinga. Vann sem Verkefnastjóri og síðan Partner síðasta árið.

Annað:
Mikla reynslu í nýsmíði og innleiðingu á stjórnendaupplýsingum í Microsoft og Cognos.

Hef mikla reynslu á forritun í hinum ýmsu forritunarmálum bæði fyrir netið og windows, hef komið að rekstri og viðhaldi gagnagrunna, aðallega í Microsoft.

preview3

Kristinn Már Magnússon Ráðgjafi
GSM     +354 8420720
E-mail kristinnm@expectus.is

Starfsreynsla:
1997-2003
Vann við þróun á sjúkraskrárkerfi Sögu hjá eMR hugbúnaði. Kerfið er útbreiddasta sjúkraskrárkerfi landsins og notað á flestum heilbrigðisstofnunum í opinberum rekstri.

2003-2007
Starfaði í upplýsingatæknideild Actavis Group við innleiðingu á alþjóðlegu áætlana- og stjórnendaupplýsingakerfi félagsins sem byggði á lausnum frá Cognos. Kerfið fólst í heildarlausn á sviði stjórnendaupplýsinga fyrir öll félög innan Actavis í yfir 30 löndum og studdi lykilferli við upplýsingavinnslu félagsins s.s. skýrslugerð, greiningu upplýsinga og áætlangerð.

2007-2008
Verkefnisstjóri við stjórnendaupplýsingakerfi Askar Capital fjárfestingarbanka. Kom að hönnum og innleiðingu á heildar stjórnendaupplýsingakerfi félagsins í Microsoft BI lausnum ofan á SAP.

2008-2009
Ráðgjafi á sviði stjórnendaupplýsingakerfa hjá Capacent Ráðgjöf en sú eining hefur sérhæft sig í þjónustu við Cognos og Microsoft lausnir. Leiddi þróun og innleiðingu á Microsoft lausnum hjá viðskiptavinum Capacent.

Annað:
Hefur mikla reynslu af þróun í ýmsum forritunarmálum. Er með umfangsmikla þekkingu á sviði viðskiptagreindar og hefur unnið að slíkum verkefni í Microsoft, Oracle og Cognos. Þekkri vel til lykilþátta og -hugtaka í kerfum sem styðja starfsemi í fjármála-, framleiðslu-, sölu-, þjónustu- og heilbrigðisstarfsemi.

Er með vottun í Prince2 og ScrumMaster verkefnastjórnun.

Gunnar Steinn Magnússon

Gunnar Steinn Magnússon Hugbúnaðarþróun
GSM    +354 6975069
E-mail gunnarsteinn@expectus.is

Menntun:
M.Sc. í tölvunarfræði frá Denmarks Technical Universiy (DTU) 2005
B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands 2003

Starfsreynsla:
2009
Hugbúnaðarsérfræðingur hjá Betware. Þróaði fjárhættuspil fyrir Íslenska Getspá og Danske Spil, bæði veflausnir sem og bakendakerfi.

2006-2008
Vann við hugbúnaðarþróun fyrir Verðbréfasvið Landsbankans. Hannaði og þróaðir lausnir við greiningar á verðbréfasöfnum fyrir starfsmenn Landsbankans sem og eigendur safnanna. Hannaði og þróaði lausnir fyrir verðbréfaviðskipti kúnna og miðlara bankans. Sá um þróun frá gagnagrunni uppí annað hvort veflausn eða Windows forrit með sameiginlegan bakenda í gegnum SOA. Öll þróun fór fram í .Net umhverfinu með Oracle eða SQL Server bakenda.

2002-2006
Vann við hugbúnaðarþróun hjá Modernus ehf. Hannaði og þróaði lausnir á sviði vefmælinga, vefvöktunar sem og kerfi fyrir rauntímasamskipti milli kúnna og starfsmenn fyrirtækja í gegnum vefinn. Lausnirnar fólu í sér mikla gagnagrunnsvinnslu sem og framsetningu og greiningu á gögnum. Aðstoðaði við rekstur og uppsetningu á Linux vefþjónum og MySQL gagnagrunnum.

Annað:
Hef reynslu í Agile og TDD hugbúnaðarþróun.

Ólafur Jóhannsson

Ólafur Jóhannsson Ráðgjafi
GSM    +354 8997528
E-mail olafur@expectus.is

Menntun:
M.Sc. nám í Corporate Finance við Háskólann í Reykjavík, áætluð útskrift 2010
B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1999

Starfsreynsla:
2009
Sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði fjármála og upplýsingatækni samhliða meistaranámi.

2007-2008
Sjóðstjóri hjá Kaupþingi með áherslu á innlenda hlutabréfasjóði og hlutabréfastýringu fyrir lífeyrissjóði. Starfið fól í sér greiningu og stefnumörkun á fjárfestingakostum með  viðskiptavinum.

2002-2007
Ráðgjafi í upplýsingatækni og fjármálum hjá Capacent (áður KPMG Ráðgjöf og IMG Ráðgjöf). Vann að fjölbreyttum verkefnum sem fólu í sér þarfagreiningar fyrir ný kerfi, aðstoð við innleiðingu upplýsingakerfa, gerð áætlanalíkana, greiningu á fjárhagsferlum og ferlum áhættustýringar.  Samhliða ráðgjöf var Ólafur kerfisstjóri Axapta kerfis Capacent á Íslandi og í Danmörku.

2000-2002
Aðstoðarmaður forstjóra hjá auglýsingastofunni Góðu fólki. Annaðist fjárhagsleg málefni, samskipti við erlenda samstarfsaðila og almennan daglegan rekstur.

1998-2000
Ráðgjafi hjá Streng í Navision Financials. Vann við innleiðingu kerfa, aðlögunum og skýrslugerð. Kom meðal annars að þróun á lausnum fyrir verðbréfafyrirtæki.

Annað:

Stundakennari í tölvuendurskoðun og upplýsingatækni, áfanga fyrir meistaranema í endurskoðun.
Stundakennari í Rekstrargreiningu við Háskólann í Reykjavík, áfangi í grunnnámi í viðskiptafræði.

Ásgeir Baldurs

Ásgeir Baldurs Ráðgjafi
E-mail asgeir@expectus.is

Menntun:
MBA frá HÍ 2004
B.Sc. Business Administration & Marketing, JW University, Providence RI, USA 1994

Starfsreynsla:
1994-2000
Sölu- og markaðsstjóri Kjötiðju KÞ og Kjötumboðsins Goða.

2000-2007
Forstjóri Vátryggingafélags Íslands frá 2006 til ársloka 2007. Tók við forstjórastarfi VÍS í ársbyrjun 2006 og innleiddi umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir í rekstri sem skiluðu ágætum árangri á sama tíma og markaðsstaða félagins batnaði umtalsvert. Forstöðumaður viðskiptaþróunar VÍS 2003-2005 og leiddi þar stefnumótun og endurskipulagningu. Starfaði sem deildarstjóri markaðs- og þjónustudeildar VÍS í upphafi starferils hjá VÍS. Var einnig framkvæmdastjóri Líftryggingafélags Íslands árin 2006-2007 og framkvæmdastjóri Varðar-Íslandstryggingar um nokkra mánaða skeið árin 2004 og 2005.

2007-2009
Stjórnarformaður Viking Redningstjeneste AS, leiðandi vegaþjónustufyrirtækis í Noregi

2008-
Stjórnarformaður Frumherja og tek virkan þátt í starfsseminni með því að leiða stefnumótun og vinna náið með stjórnendum í rekstrarlegum og fjárhagslegum þáttum fyrirtækisins.

Annað:
Hef setið í stjórnum fjölda fyrirtækja bæði hérlendis og erlendis í fjármálastarfsemi, tryggingastarfsemi, öryggisstarfsemi, flugrekstri og ferðaþjónustu.
Hefur mikla reynslu af rekstri, endurskipulagningu, stefnumótun og kaupum og sölum á fyrirtækjum.

Sit í framkvæmdastjórn ungmennafélagsins Breiðabliks

Expectus, Vegmúla 2, 108 Reykjavík, Sími 444 9800, Netfang: expectus@expectus.is
© Expectus 2009