Upplýsingatækniráðgjöf
Expectus upplýsingatækniráðgjöf aðstoðar fyrirtæki við að stilla saman stefnudrifin markmið fyrirtækisins við ákvarðanatöku. Við greinum vel þarfir fyrirtækja og komum með raunhæfar áætlanir að lausnum sem við skilum á réttum tíma. Upplýsingatækniráðgjafar hafa unnið fjölda verkefna tengd viðskiptagreind, hugbúnaðarþróun og rekstri upplýsingakerfa.
Hvað gerir Expectus upplýsingatækniráðgjöf?
- Við þarfagreinum og komum með raunhæfar lausnir sem tryggja árangur
- Við hönnum arkitektúr upplýsingakerfa
- Við búum til mælaborð, skorkort, skýrslur og greiningarverkfæri
- Við samþættum gögn úr mismunandi kerfum
- Við finnum tekjuleka og villur í ferlum
- Við breytum gögnum í þekkingu
Hvenær ættir þú að leita til Expectus?
Expectus veitir ráðgjöf og beitir fjölbreyttum aðferðum sem nýtast öllum fyrirtækjum og stofnunum á öllum þroskastigum.
Leitaðu til okkar þegar:
- Þarft að velja og innleiða viðskiptagreindarkerfi (BI)
- Það vantar betri innsýn inn í reksturinn
- Það þarf að auka skilvirkni ferla
- Misræmi er í gögnum milli kerfa
- Þú vilt fækka villum í skýrslum
- Þú vilt að reksturinn sé í samræmi við markmið fyrirtækisins
- Þú vilt nýta starfsfólkið betur
- Þú hefur ekki tíma til að gera allt á eigin spýtur
Af hverju ættir þú að leita til Expectus?
Þú ættir að leita til Expectus vegna þess að:
- Við höfum reynsluna til að tryggja að verkefni séu unnin faglega og á áætluðum tíma
- Við höfum breiða reynslu á flestum sviðum upplýsingatækni
- Við erum gullvottaðir samstarfsaðilar Microsoft í Business Intelligence

