Hvað segja viðskiptavinirnir um okkur?
    • Expectus aðstoðaði okkur við gerð og
    • innleiðingu þjónustustefnu fyrir Lands-
    • bankann og þjálfun starfsmanna. Sú vinna
    • skapaði grunninn að þeim sterka þjónustu
    • vilja sem ríkir í bankanum í dag.

    • Ásta Malmquist
    • þjónustustjóri
    • Landsbanki Íslands
    • Expectus sá um verkefnastjórn við gerð
    • Sóknaráætlunar 2020. Ráðgjafar Expectus
    • stýrðu þessu umfangsmikla og flókna verk-
    • efni af útsjónarsemi og festu og fá þeir mín
    • bestu meðmæli.

    • Arnar Þór Mássonf
    • skrifstofustjóri
    • Forsætisráðuneytið
    • Ráðgjafar Expectus aðstoðuðu okkur við
    • stefnumótun félagsins og markmiðasetn-
    • ingu til næstu ára sem reyndist lykilþáttur
    • í að snúa rekstri félagsins til betri vegar.

    • Gunnar Freyr Guðmundsson
    • framkvæmdastjóri fjármálasviðs
    • Jarðboranir
    • Viðskiptagreindarlausnir og exMon kerfi
    • Expectus hafa sparað Vodafone stórar
    • fjárhæðir og því er mér sönn ánægja að
    • veita þeim mín bestu meðmæli.

    • María Arthúrsdóttir
    • deildarstjóri Hagdeildar
    • Vodafone
    • Ráðgjafar Expectus hjálpuðu okkur að
    • nýta betur þau tæki sem við áttum og
    • gerðu okkur kleift að spara verulega
    • fjármuni sem annars fóru í hugbúnaðar-
    • leyfi og viðhaldsgjöld.

    • Gunnar Birgisson
    • framkvæmdastjóri fjármálasviðs / CFO
    • Vífilfell
    • exMon leysir þörf okkar við að sinna
    • innra eftirliti í hinum ýmsu viðskiptaferlum
    • félagsins og er í raun hugbúnaður sem við
    • höfum leitað að um nokkurn tíma.

    • Sveinbjörn Valgeir Egilsson
    • forstöðumaður innri endurskoðunar
    • Icelandair Group
    • Við völdum Expectus til að aðstoða
    • okkur við að skerpa á stefnu, gildum og
    • framtíðarsýn samtakanna og koma auga
    • á úrbótatækifæri. Árangurinn af þeirri
    • vinnu er óumdeilanlegur.

    • Guðjón Rúnarsson
    • framkvæmdastjóri SFF
    • Úrbótavinnustofa Expectus er frábær
    • leið til koma á samvinnu og breytingaferli.
    • Afurð vinnustofunnar eru vel skilgreind
    • og forgangsröðuð úrbótatækifæri sem
    • auðvelt er að fylgja eftir.

    • Sigrún Ósk Sigurðardóttir
    • aðstoðarforstjóri ÁTVR
    • Ráðgjafar Expectus leiddu okkur í gegnum
    • greiningu á ytra umhverfi og kjarnahæfni
    • og úr varð markmiðasetning, mælaborð
    • stjórnenda og aðgerðaráætlun til að koma
    • stefnunni í framkvæmd.

    • Ari Fenger
    • framkvæmdastjóri
    • 1912 ehf
    • exMon kerfið hefur sparað okkur stórar
    • fjárhæðir með því að koma í veg fyrir
    • tekjuleka, auka hagkvæmni og lækka
    • kostnað. Fjárfestingin skilaði sér margfalt
    • til baka á fáeinum mánuðum.

    • Valgeir M. Baldursson
    • framkvæmdastjóri
    • hjá Skeljungi

Rekstrarráðgjöf

Expectus rekstrarráðgjöf aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að greina og bregðast við breytingum í umhverfi sínu, greina styrkleika og veikleika í innviðum, draga fram lykilhæfni, marka stefnu og koma henni í framkvæmd.  Rekstrarráðgjafar Expectus hafa unnið fjölda verkefna á þessu sviði.  Við vinnum með viðurkenndar aðferðir sem við höfum tileinkað okkur í gegnum tíðina með samstarfi við virtustu ráðgjafafyrirtæki heims og aðlagað að íslenskum aðstæðum.  Við vinnum með stjórnum, forstjórum, framkvæmdastjórum og millistjórnendum að því að ná betri árangri í þeirra starfi.

Hvað gerir Expectus rekstrarráðgjöf?

  • Við vinnum rannsóknir og greiningarvinnu, skoðanakannanir, frumrannsóknir og gagnaöflun
  • Við höfum langa reynslu af markaðs-, starfsmanna-  og þjónusturannsóknum bæði sem notendur og þjónustuveitendur og getum aðstoðað þig við að hámarka skilvirkni þeirra
  • Við gerum umhverfisgreiningar (PESTLE) þar sem við greinum áhrifaþætti, líklega þróun þeirra, áhrif á fyrirtækið og drögum fram hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar til að mæta þeim
  • Við skoðum atvinnugreinar þar sem við horfum til þeirra krafta sem eru að verki hverju sinni, eins og afl kaupenda og birgja, aðgangshindranir, innri samkeppni og ógnun af staðgengilsvörum
  • Öflug fjármálalíkön okkar auðvelda okkur að vinna allar fjármálalegar greiningar, áreiðanleikakannanir, kennitölugreiningar, verðmöt, næmnigreiningar og rekstraráætlanir
  • Við hjálpum þér að koma auga á tækifæri til vaxtar og aðstoðum þig við samruna og yfirtökur
  • Við veltum upp stefnumótandi valkostum með þér og hjálpum þér að flokka þá og greina
  • Við aðstoðum þig við setja þér krefjandi markmið, skýra framtíðarsýn og skerpa á hlutverkinu

Hvenær ættir þú að leita til Expectus?

Expectus veitir ráðgjöf og beitir fjölbreyttum aðferðum sem nýtast öllum fyrirtækjum og stofnunum á öllum þroskastigum. Leitaðu til okkar þegar:

  • Reksturinn er undir væntingum
  • Þú þarft að skerpa á hlutverki eða framtíðarsýn
  • Salan er undir væntingum
  • Arðsemi rekstarins er óviðunandi
  • Þú vilt ná betri árangri í markaðssetningu
  • Þú vilt nýta starfsfólkið betur
  • Þú vilt setja þér ögrandi markmið
  • Þú vilt fá nýjar hugmyndir um það hvernig fyrirtækið getur vaxið
  • Þú þarft aðstoð við að endurskipuleggja fjárhaginn
  • Þú hefur ekki tíma til að gera allt á eigin spýtur

Af hverju ættir þú að leita til Expectus?

Þú ættir að leita til Expectus vegna þess að:

  • Við erum sérfræðingar á þessum sviðum
  • Við höfum reynsluna – bæði sem stjórnendur og ráðgjafar – við höfum verið í þínum sporum
  • Við vinnum með viðurkenndar aðferðir sem við höfum aðlagað að íslenskum aðstæðum

Við hjálpum þér að ná fram raunverulegum breytingum og mæla árangurinn