Starfsmenn

  • Ásgeir Baldurs

    Ásgeir hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði stefnumótunar, stjórnunar, skipulagsvinnu og árangurstjórnunar fyrir stór og meðalstór fyrirtæki.  Hann hefur reynslu mótun og innleiðingu stefnu til sóknar og/eða hagræðingar í fyrirtækjum.  Fjölþætt reynsla Ásgeirs bæði hérlendis og erlendis nýtist bæði í endurskipulagningu fyrirtækja sem og mati á fjárfestingatækifærum.

    Meira...
     

  • Guðni Þór Jónsson

    Guðni hefur mikla reynslu af sölu- og þjónustumálum, sölustjórnun, val á markhópum og skipulagningu á sölu/söluherferða. Hann hefur m.a. unnið með stjórnendum að innleiðingu stefnu og markmiða. Reynsla og þekking Guðna nýtist einkar vel við skipulag á sölu og þjónustumálum, þjálfun sölumanna og þjónustufólks í framlínu.

    Meira...


  • Gunnar Steinn Magnússon

    Gunnar Steinn hefur starfað við hugbúnaðarþróun í yfir 10 ár og hefur mikla reynslu á þróun viðskiptahugbúnaðar í Microsoft .Net umhverfi. Hann hefur stjórnað fjölmörgum verkefnum frá þarfagreiningu til innleiðingar og hefur snert flestar hliðar hugbúnaðar.

    Meira...

     

     

  • Gunnar Tómas Gunnarsson

    Gunnar Tómas hefur góða reynslu við þróun hugbúnaðar í Microsoft .Net umhverfinu og hefur nýtt þá þekkingu sína við endurbætur og þróun viðbóta við exMon rauntímaeftirlitskerfið

    Meira...



  • Helgi Þór Helgason

    Helgi býr að margra ára reynslu í öllum þáttum sem varða úrvinnslu stjórnendaupplýsinga úr gagnagrunnum fyrirtækja með sérstaka áherslu á fjármálafyrirtæki. Jafnframt þekkir hann vel til þróunar og viðhalds gagnavöruhúsa. Helgi hefur því úrvals reynslu sem nýtist vel í starfi sem ráðgjafi í viðskiptagreind

    Meira...
     

     

  • Hörður Guðmundsson

    Hörður hefur áralanga reynslu sem lögfræði-, skatta- og rekstrarráðgjafi og hefur unnið að ótal verkefnum með fjölmörgum af stærstu fyrirtækjum landsins því tengdu. Hörður er jafnframt vel að sér í fjármálum og hefur margoft aðstoðað fyrirtæki við verðmöt og endurfjármögnun af ýmsu tagi.

    Meira...



  • Hörður Már Jónsson

    Hörður hefur unnið að innleiðingu af mörgum stærstu viðskiptagreindar og áætlunarkerfum landsins. Hörður hefur mikla reynslu í Cognos en hefur síðustu ár verið að einbeita sér að Microsoft BI. Hann hefur búið til mörg stór og flókin vöruhús með SQL Server Integration Services. Hörður hefur einbeitt sér af því að sjálfvirknivæða viðskiptagreinar ferla og setja þá í rafrænt eftirlit með hjálp exMon.

    Meira...

     

  • Kristinn Tryggvi Gunnarsson

    Kristinn  hefur starfað með fjölmörgum af 300 stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála.  Hann hefur mikla reynslu af stjórnun viðskiptatengsla, markaðshlutun, virðismati, vöruþróun, þróun dreifileiða og sölustjórnun
    og hefur kennt þjónustustjórnun við Háskólann í Reykjavík síðan 2004.

    Meira...

     

  • Kristinn Már Magnússon

    Kristinn hefur mikla reynslu úr bæði hugbúnaðarþróun og innleiðingu viðskiptagreindarkerfa fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins. Kristinn hefur einbeitt sér að því að stilla saman stefnu fyrirtækja og ákvarðantökur með hjálp viðskiptagreindar.  Kristinn hjálpar einnig fyrirtækjum að ná fram myndrænni framsetningu upplýsinga til að auðvelda skilvirkni í ákvarðanatökum.

    Meira...

     

  • Magnús Árni Magnússon

    Magnús er dósent við Háskólann á Bifröst og hefur langa reynslu sem stjórnandi, m.a. sem forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, rektor, deildarforseti og aðstoðarrektor við Háskólann á Bifröst og sem partner hjá Capacent, þar sem hann vann við stefnumótunarráðgjöf og þjálfun hjá ýmsum fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum. Hann hefur kennt fjöldamörg námskeið við háskóla hér á landi sem erlendis, setið í stjórnum og ráðum á ýmsum vettvangi og átti sæti á Alþingi 1998 - 1999.

    Meira...

  • Ragnar Þórir Guðgeirsson

    Ragnar hefur stýrt verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, skipulagsvinnu, fjármála og breytingarstjórnunar. Hann hefur mikla reynslu á sviði endurbóta á ferlum, þróunar stjórnunarupplýsinga og notkunar upplýsingatækni til hagræðingar í rekstri. Reynsla Ragnars á sviði stjórnunar og fjármálaþekking hans sem endurskoðanda hafa skapað honum sérstöðu sem nýtist vel í flóknum verkefnum á sviði fjárhagslegrar endurskipulagningar og við kaup og sölur fyrirtækja.

    Meira...
     

  • Ragnhildur Ágústsdóttir

    Ragnhildur hefur góða reynslu af rekstri, stjórnun og stefnumótun og hefur m.a. komið að stofnun og sameiningu fyrirtækja. Hún hefur menntun og reynslu af mótun og innleiðingu stefnumarkandi aðgerða sem ætlað er að ná varanlegum árangri í rekstri. Reynsla og þekking Ragnhildar nýtist einkar vel til breytingastjórnunar, endurskipulagningar og stefnumótunar þar sem lykilatriði er að greina rót vandans og finna varanlegar leiðir til úrbóta.

    Meira...
     

  • Sigurður Bjarnason

    Sigurður hefur mikla reynslu af hönnun og uppsetningu á gagnavöruhúsum í Microsoft umhverfi og er með umtalsverða þekkingu á Microsoft SQL Server. Hann hefur haldgóða reynslu á að vinna gögn upp úr öðrum kerfum og hefur mjög gaman af því að einangra og bæta afköst á gagnagrunnsvinnslum. Auk þess þykir honum fátt skemmtilegra en sjálfvirknivæða flókin ferli til að losa tíma starfsfólks fyrir önnur meira virðisaukandi verkefni.

    Meira... 

  • Sigurjón Hákonarson

    Sigurjón  hefur áralanga reynslu af stefnumótun og stjórnun í upplýsingatækni. Hann hefur mikla reynslu af innleiðingu skjalastjórnunar og viðskiptaferla. Hann leggur áherslu á að ná samhljómi milli viðskiptaaðila og tækniaðila í innleiðingu upplýsingatæknikerfa, sem og að hafa skýr og mælanleg markmið. Síðustu ár hefur Sigurjón einbeitt sér að því að ná fram aukinni skilvirkni í notkun upplýsingakerfa á borð við Microsoft SharePoint.

    Meira...

  • Sindri Sigurjónsson

    Sindri hefur aðstoðað mörg fyrirtæki við að hagræða í rekstri sínum. Starf hans hefur meðal annars falist í að greina rekstur fyrirtækja , endurhanna ferla og velja ný viðskiptakerfi fyrir fyrirtæki sem styðja betur við rekstur þeirra. Auk þessa hefur hann starfað við að aðstoða þau við áætlanagerðir, virðislíkön, kostnaðarúthlutanir. Ennfremur hefur hann aðstoðað stjórnendur við að nýta sér það forskot sem notkun viðskiptagreindar (BI) hefur fyrir fyrirtæki m.a. til þess að stjórnendur geti tekið upplýstar ákvarðanir byggða á þeim gögnum sem til staðar eru hjá fyrirtækinu.
    Meira...