Hörður Már Jónsson
Ráðgjafi
Farsími: +354 8244787
Netfang: hordur@expectus.is
Menntun:
B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands 2006
Starfsreynsla:
Hörður hefur unnið að innleiðingu af mörgum stærstu viðskiptagreindar og áætlunarkerfum landsins. Hörður hefur mikla reynslu í Cognos en hefur síðustu ár verið að einbeita sér að Microsoft BI. Hann hefur búið til mörg stór og flókin vöruhús með SQL Server Integration Services. Hörður hefur einbeitt sér af því að sjálfvirknivæða viðskiptagreindarferla og setja þá í rafrænt eftirlit með hjálp exMon.
2005-2009
Ráðgjafi hjá Capacent á sviði stjórnendaupplýsinga, hönnun og smíði gagnavöruhúsa, áætlanagerð, skýrslugerð, samþættingu tölvukerfa ásamt sérverkefnum. Smíðaði og hannaði ýmis kerfi sem auðvelda innleiðingu og rekstur stjórnendaupplýsinga. Var Verkefnastjóri og síðan Partner síðasta árið.
2001-2004
Hugbúnaðarþróun hjá Árvakri hf. Starfaði við þróun á vefdeild mbl.is. Smíðaði helstu kerfi sem koma að daglegum rekstri mbl.is s.s. fréttakerfi og auglýsingarkerfi. Sinnti ýmsum sérverkefnum svo sem vinnu við gagnasafn Morgunblaðsins og færslu efni blaðsins yfir á netið.
1998-2005
Sjálfsætt starfandi í hugbúnaðarþróun. Smíðaði og hannaði vefkerfi sem seld voru til margra fyrirtækja. Rekstur á vefþjónum og gagnagrunnum. Sérforritun fyrir flóknari vefkerfi ásamt hönnun og forritun margmiðlunardiska.
Annað:
Hefur mikla reynslu af nýsmíði og innleiðingu á stjórnendaupplýsingum í Microsoft og Cognos.
Er með mikla reynslu af forritun í ýmsum forritunarmálum fyrir vef, Unix og Microsoft umhverfi. Hefur komið að rekstri og viðhaldi gagnagrunna, aðallega í Microsoft.
