Fyrri verkefni Sindra

  Gerð viðskiptaáætlana og virðisstjórnunarlíkana

  Stýrt og innleitt áætlunarferli og kerfi tengd þeirri framkvæmd

  Þarfagreining og innleiðing fyrir útskiptingu viðskiptakerfa fyrirtækja

  Hannað og þróað viðskiptagreindarumhverfi fyrirtækja

  Hönnun og innleiðing á kostnaðarúthlutanaaðferðum byggða á mismunandi aðferðarfræðum

  Stýrt innleiðingu upplýsingakerfa, greiningu þarfa og breytingu verkferla.

  Stýrt umbótaverkefnastofu með því markmiði að stuðla að sífelldum umbótum í rekstri (Lean Six Sigma)

Sindri Sigurjónsson

Ráðgjafi
Farsími: +354 8522233
Netfang: sindri@expectus.is

Menntun:
M.Sc. í aðgerðarrannsóknum frá London School of Economics 2006
B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 2003

Starfsreynsla:
Sindri hefur aðstoðað mörg fyrirtæki við að hagræða í rekstri sínum. Starf hans hefur meðal annars falist í að greina rekstur fyrirtækja , endurhanna ferla og velja ný viðskiptakerfi fyrir fyrirtæki sem styðja betur við rekstur þeirra. Auk þessa hefur hann starfað við að aðstoða þau við áætlanagerðir, virðislíkön, kostnaðarúthlutanir. Ennfremur hefur hann aðstoðað stjórnendur við að nýta sér það forskot sem notkun viðskiptagreindar (BI) hefur fyrir fyrirtæki m.a. til þess að stjórnendur geti tekið upplýstar ákvarðanir byggða á þeim gögnum sem til staðar eru hjá fyrirtækinu.

2009-2011
Forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Skeljungi. Ábyrgur fyrir innleiðingu á stefnumótun, umbótaverkefnum og allri upplýsingagjöf, áætlanagerð, hvatakerfum, greiningu viðskiptatækifæra ásamt vali og innleiðingu nýrra viðskiptakerfa. Sá um breytingastjórnun og innra sölustarf fyrir starfsfólk og yfirstjórn við innleiðingu á notkun rauntímaupplýsinga við ákvarðanatöku. Hannaði, þróaði og innleiddi stjórnendaupplýsingakerfi Skeljungs.

2008-2009
Sérfræðingur á fjármálasviði samstæðu í Kaupþing/Arion banka. Lykilaðili í viðskiptagreiningarhópi sem hafði þá ábyrgð að straumlínulaga ferla og upplýsingagjöf innan bankans.

2006-2008
Deildarstjóri framleiðsluþróunar hjá Actavis hf. Bar ábyrgð á skilgreiningu og stýringu umbótaverkefna sem stuðluðu að stöðugum umbótum (Lean Six Sigma) innan deilda og hópa fyrirtækisins. Ábyrgur fyrir áætlanagerð á rekstri, efnahag og fjárfestingum ásamt greiningum á lykilmælikvörðum fyrirtækisins.

2003-2005
Lykilviðskiptastjóri Calidris/Sabre. Bar ábyrgð á afhendingu, þjálfun og innleiðingu á vörum fyrirtækisins hjá helstu viðskiptavinum þess. Hugbúnaðurinn sá um að sjálfvirknivæða ýmsa viðskiptaferla og var í því mikil ráðgjöf til viðskiptavina í kringum breytingastjórnun. Skilgreindi hlutverk viðskiptastjóra og starfaði sem slíkur fyrir m.a. Emirates og Royal Jordanian.

Annað:
Stundarkennari í meistaranámi við verkfræðideild Háskóla Íslands 2009
Meistaranám í fjármálum fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík 2010

Hafa samband við Sindra