Sigurður Bjarnason
Ráðgjafi
Farsími: +354 444 9806
Netfang: sigurdur@expectus.is
Starfsreynsla:
Sigurður hefur mikla reynslu af hönnun og uppsetningu á gagnavöruhúsum í Microsoft umhverfi og er með umtalsverða þekkingu á Microsoft SQL Server. Hann hefur haldgóða reynslu á að vinna gögn upp úr öðrum kerfum og hefur mjög gaman af því að einangra og bæta afköst á gagnagrunnsvinnslum. Auk þess þykir honum fátt skemmtilegra en sjálfvirknivæða flókin ferli til að losa tíma starfsfólks fyrir önnur meira virðisaukandi verkefni.
2007-2010
Ráðgjafi hjá Capacent á sviði stjórnendaupplýsinga, við hönnun og smíði gagnavöruhúsa, áætlanagerð, skýrslugerð, samþættingu tölvukerfa og ýmis sérverkefni. Leiddi gagnagrunnsþróun og innleiðingu á Cognos og Microsoft lausnum hjá viðskiptavinum Capacent.
2006-2007
Starfaði hjá Aðföngum við endurskipulagningu á vöruhúsi, hönnun á bættu vöruflæði og auknum afköstum vöruhússins. Sá um að hanna og skjala verkferla fyrir rekstrarhandbók vöruhússins sem stuðluðu m.a. að minnkaðri rýrnun og bættum afköstum starfsmanna.
Annað:
Hefur mikla reynslu af forritun og hönnun gagnagrunna ásamt nýsmíði og innleiðingu á stjórnendaupplýsingum
í Microsoft og Cognos.
Er með vottanir í Microsoft Business Intelligence 2008, Microsoft SQL Server 2008 Database Development, Microsoft SQL Server 2008 Implementation and Maintenance, Cognos 8 BI Technical Specialist, Cognos 8 BI Author, Cognos 8 BI Administrator, Cognos 8 BI OLAP Developer.
Sæktu nafnspjald Sigurðar í símann þinn:
