Námskeið og þjálfun
Á hvaða sviði eru námskeið og þjálfun hjá Expectus?
Til að ná árangri í stjórnun, þjónustuveitingu og sölustarfi er markviss þjálfun starfsmanna nauðsynleg. Ráðgjafar Expectus hafa langa reynslu af kennslu á háskólastigi sem nýtist þeim vel við námskeiðshald. Námskeiðum Expectus er ætlað að styðja við ráðgjafaverkefnin og auka líkur á því að innleiðingu breytinga sé fylgt alla leið. Sérhæfing okkar liggur á sviði sölustjórnunar og ráðgefandi sölumennsku, þjónustustjórnunar og þjónustuveitingar, frammistöðustjórnunar, stjórnunar sérfræðinga og rekstrargreiningar.
Dæmi um námskeið:
• Betri árangur í sölu
• Að sækja meiri viðskipti
• Að finna bestu lausnina og loka sölu
• Ræktun viðskiptasambandsins
• Þjónustuþjálfun fyrir framlínustarfsmenn
• Þjónustuþjálfun fyrir stjórnendur
• Að eignast ánægðustu viðskiptavinina
• Frammistöðustjórnun
• Markaðssetning þjónustu
• Virði trausts
• Að koma stefnunni í framkvæmd
• Markviss stjórnun byggð á Q12
• Að stjórna stjórnendum
• Rekstrargreining
• Stefnumótun
Af hverju námskeið og þjálfun hjá Expectus?
Leiðbeinendur Expectus eru sérfræðingar á sínu sviði með mikla reynslu úr atvinnulífinu. Þeir veita því þátttakendum innsýn inn í raunverulegar aðstæður. Við styðjumst við aðferðarfræði fullorðinsfræðslu (e. Experiential Learning) með áherslu á virka þátttöku, raunhæf verkefni og tæki og tól sem nýtast í starfi. Expectus er í samstarfi við Opna háskólann við Háskólann í Reykjavík og eru námskeið okkar haldin í glæsilegum húsakynnum skólans.
Hvenær henta námskeið og þjálfun hjá Expectus?
Námskeið og þjálfun henta m.a. þegar vilt:
• Bæta árangur stjórnenda þinna
• Auka árangur sölumanna
• Skerpa á áherslum í sölustjórnun
• Bæta þjónustuupplifun viðskiptavina
• Auka hæfni framlínustjórnenda í þjónustustjórnun
• Auka hæfni, þekkingu og getu framlínustarfsfólks
• Auka leiðtogahæfni
Þú færð:
• Undibúningsverkefni þar sem þú finnur verkefni úr eigin starfsumhverfi til að vinna með á námskeiðunum
• Þjálfun sem byggir á fyrirlestrum, einstaklings- og hópverkefnum þar sem unnið er með raunhæf dæmi
• Vönduð námskeiðsgögn og vinnubækur
• Öll eyðublöð á rafrænu formi
• Ýmsar greinar og ítarefni
• Þátttakendur undirbúa sig með því að glíma við verkefni úr eigin starfsumhverfi. Þannig er tryggt að þær aðferðir sem kenndar eru á námskeiðunum gagnist sem best
Viðskiptavinir sem hafa nýtt sér námskeið og þjálfun með Expectus:
Við höfum haldið námskeið hjá ráðuneytum, stofnunum,sveitarfélögum,félagasamtökum og öllum tegundum fyrirtækja, stórum og smáum, innlendum og erlendum.
Umfang verkefnis:
Heilsdagsnámskeið eru algengust en lengd og fyrirkomulag er aldrei ákveðið fyrr en að undangenginni þarfagreiningu.