Hvað er mælaborð stjórnandans?
Mælaborð stjórnandans er safn af mælingum sem hafa afgerandi áhrif á árangur í viðkomandi stjórnunareiningu. Mælaborði stjórnandans má líkja við mælaborð í ökutæki þar sem stjórnandinn þarf að fylgjast með mörgum þáttum samtímis. Oft á tíðum nægir að einn þáttur verði ófullnægjandi til verulegt frávik verði í árrangri frá því áætlun gerði ráð fyrir. Það sem skiptir höfuðmáli við skipulag mælaborðsins hvaða þættir eru valdir til að fylgjast með. Við leitum því að lykil árangursþáttum (e. key performance indicators). Slíkir þættir hafa það sameiginlegt að gefa annað hvort vísbendingar um framtíðar árangur (e. leading indicators) eða mæla árangur sem náðst hefur á ákveðnum sviðum (e. lagging indicators). Gott mælaborð samanstendur af báðum tegundum mælikvarða.
Mælaborðið segir okkur:
- Hvaða viðmið við setjum okkur sem markmið fyrir viðkomandi mælingu.
- Hvaða bil undir markmiði okkar er talið ásættanleg en kallar engu að síður á aðgerðir.
- Gefur okkur á örfáum sekúndum upplýsingar um hvort árangur er góður eða ekki.
Af hverju mælaborð?
Til að tryggja góðan árangur til skamms og langs tíma er nauðsynlegt að mæla hann kerfisbundið. Árangur ræðst hins vegar af aðgerðum og hægt er að greina hvaða aðgerðir skila bestum árangri. Þær aðgerðir þarf einnig að mæla. Markvissar mælingar eru forsenda þess að geta séð hvort árangur fyrirtækja og stofnana fer batnandi eða versnandi.
Hvenær hentar mælaborð stjórnandans?
Mælaborð stjórnandans hentar hvar sem stjórnun fer fram í fyrirtæki eða stofnun og getur tekið til ólíkra þátta í rekstrinum, sem dæmi má nefna:
- Í framlínu þjónustufyrirtækja, s.s. töpuð símtöl, biðtími afgreiðslu, fjöldi afgreiðslna á klukkustund. Þetta eru dæmi um þjónustumælingar.
- Mælingar á afköstum í dýrum framleiðslutækjum, s.s. framleiddar einingar á klukkustund, bilanatíðni, biðtími vegna bilana (NPT).
- Fjárhagslegir mælikvarðar, s.s. tekjur á tímabili, tekjur á hvern sölumann, hagnaður, EBITDA, skuldahlutfall, eiginfjárhlutfall, veltufjárhlutfall, arðsemi.
- Starfsmannamælingar, s.s. ánægja starfsmanna, hlutfall með fagmenntun, tíðni slysa, starfsmannavelta, framleiðni vinnuafls.
Við skilum:
- Greiningu á lykilárangursþáttum
- Markmiðum (gjarnan byggt á stefnumótun)
- Mælikvörðum
- Viðmiðum
- Vikmörkum
- Kerfisvæðingu
Viðskiptavinir sem hafa nýtt sér mælaborð stjórnandans með Expectus:
Í öllum okkar stefnumótunarverkefnum ljúkum við verkefninu með því að skilgreina mælaborð. Í þeim verkefnum höfum við unnið fyrir ríkisstjórnir, stofnanir, sveitarfélög, félagasamtök og allar tegundir fyrirtækja, stór og smá, innlend og erlend.
Umfang verkefnis:
Umfangið fer eftir stærð og gerð fyrirtækja eða stofnana sem eiga í hlut. Markmiðavinnustofa, úrvinnsla hennar og skilgreining mælikvarða tekur 40-70 klst. Vinnu við innleiðingu getur hins vegar verið flóknari þar sem skilgreina þarf gagnaflæði, sjálfvirka vinnslu og val og uppsetningu á tæknibúnaði.
Tengiliðir: