FJÁRHAGSLEG ENDURSKIPULAGNING
Hvað er fjárhagsleg endurskipulagning?
Í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 og hruns íslensku krónunnar eru mörg lítil og meðalstór fyrirtæki mjög skuldsett og hafa jafnvel neikvæða stöðu eigin fjár, þrátt fyrir að rekstrargrundvöllur þeirra sé góður. Markmið fjárhagslegrar endurskipulagningar er að leysa úr skulda- og eiginfjárvanda fyrirtækja til frambúðar, í samvinnu við lánveitendur og hluthafa þannig að allir aðilar hafi hag af. Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja getur farið fram á marga mismunandi vegu.
Dæmi um verkþætti sem ráðgjafar hjá Expectus vinna eru:
- Greiningu á stöðu fyrirtækja, bæði fjárhagslega og markaðslega
- Óháð úttekt á skuldastöðu, greiðslugetu og fjárþörf
- Gerð rekstrar-, efnahags- og sjóðsstreymisáætlunar
- Framkvæmd verðmats á fyrirtæki miðað við mismunandi forsendur
- Endurútreikingur erlendra lána
- Koma með tillögur að endurskipulagningu rekstrar og efnahags
- Innleiðingu stefnumótunar og árangursmælinga
- Samningar við lánastofnanir og aðra lánardrottna
- Endurfjármögnun fyrirtækis hjá núverandi eða nýjum hluthöfum
- Stefnumótun sem styður framtíðarsýn eigenda félagsins
- Tímabundin framkvæmdastjórn/stjórnarseta á meðan unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu
Af hverju fjárhagsleg endurskipulagning?
Stjórnendur skuldsettra fyrirtækja vanrækja oft reglubundinn rekstur og einbeita sér að úrlausn skuldamála, sem oft er flókið og tímafrekt ferli sem hefur í för með að rekstri fyrirtæksins er ekki sinnt sem skyldi. Ráðgjafar Expectus hafa unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu margra fyrirtækja undanfarin ár með góðum árangri sem þýðir að bæði hluthafar og lánveitendur eru sáttir við niðurstöðuna og rekstrargrundvöllur fyrirtækja í kjölfarið er góður.
Hvenær hentar fjárhagsleg endurskipulagning?
Fjárhagsleg endurskipulagning hentar m.a. þegar:
- Reksturinn er undir væntingum
- Þú þarft að skerpa á hlutverki eða framtíðarsýn
- Arðsemi rekstarins er óviðunandi
- Þú vilt ná betri árangri í markaðssetningu og sölu
- Þú vilt nýta starfsfólkið betur
- Þú vilt setja þér ögrandi markmið
- Þú vilt fá nýjar hugmyndir um það hvernig fyrirtækið getur vaxið
Viðskiptavinir sem hafa farið í gegnum
fjárhagslega endurskipulagningu með Expectus:
Við höfum unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu með mörgum fyrirtækjum undanfarin ár, bæði með ráðgjöf og tekið að okkur stjórn fyrirtækja um óákveðin tíma.
Umfang verkefnis:
Umfangið fer eftir stærð og gerð fyrirtækja og þeirra aðgera sem er þörf. Í sumum tilvikum nægir að gera úttekt og stöðuskýrslu fyrir lánveitanda, á meðan að í öðrum tilvikum þarf ítarlegri greiningar og aðstoð við að hrinda rekstrartengdum úrbótatækifærum í framkvæmd auk þess að stýra samningaviðræðum við lánastofnanir og öflun nýs hlutafjár.
Tengiliðir: